Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2021
54,4 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Lyfta
Opið hús: 7. júní 2025
kl. 13:00
til 14:00
Opið hús: Norðurhella 13, 221 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd laugardaginn 7. júní 2025 milli kl. 13:00 og kl. 14:00.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Eignamiðlun og Rögnvaldur Örn Jónsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu bjarta og vel skipulagða 54,4 fm tveggja herbergja/stúdíó íbúð að Norðurhellu 13.Íbúðin er staðsett á 2. hæð í fallegu lyftuhúsi sem byggt var árið 2021. Stórar svalir sem snúa í suðvestur.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Nánari lýsing eignarinnar:
Íbúðin er mjög falleg og björt með stórar svalir sem snúa í suðvestur. Í anddyri eru góðir fataskápar.
Eldhús er með fallegri innréttingu með innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum kæliskáp ásamt því að vera með helluborð og ofn. Öll tæki frá AEG. Gott skápapláss og hægt að hafa barstóla við eyjuna.
Baðherbergi er stórt og rúmgott með góðri sturtu, upphengdu klósetti, handklæðaofn og fallegri innréttingu. Fallegar flísar á gólfi og á hluta af veggjum.
Þvottahús er með góðri innréttingu með vask og með vélarnar í vinnuhæð. Gott skápapláss. Geymsla er innaf þvottahúsi og er rúmgóð. Þvottahús og geymsla er með flísar á gólfi.
Svefnherbergi er með góðum fataskápum.
Stofa er með útgengi útá svalirnar.
Fallegt parket er á allri íbúðinni fyrir utan þvottahús og baðherbergi þar sem eru flísar.
Sameign afar snyrtileg með góðri hjóla og vagnageymslu.
Falleg eign sem vert er að skoða þar sem stutt er í alla þjónustu ss. verslun, leikskóla og skóla.
Nánari upplýsingar veitir Rögnvaldur Örn Jónsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6603452, tölvupóstur rognvaldur@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
3. feb. 2023
46.050.000 kr.
42.000.000 kr.
54.4 m²
772.059 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025