Upplýsingar
Byggt 1977
385,8 m²
8 herb.
4 baðherb.
6 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Aukaíbúð
Opið hús: 10. júní 2025
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Bjargartangi 2, 270 Mosfellsbær. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 10. júní 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Böðvar Sigurbjörnsson og Borg fasteignasala kynna til sölu: Bjargartangi 2, 270 Mosfellsbær - Vandað 385,5 m2 einbýlishús teiknað af Kjartani Sveinssyni með tveimur auka íbúðum og tvöföldum bílskúr. Húsið stendur á fallega gróinni hornlóð við enda götunnar á eftirsóttum stað í Mosfellsbæ.
** 2 auka íbúðir ** Leigutekjur ** Tvöfaldur bílskúr ** ** Bílastæði **
Nánar: Aðalhæð hússins er skráð hjá Fasteignaskrá eftirfarandi, íbúð mertk 01-0101, 195,3 m2. Komið er inn í anddyri með flísum á gólfi, þar er fataskápur, gestasalerni og eitt svefnherbergi. Frá anddyri er komið inn í hol með parketi á gólfi sem tengir saman rými hæðarinnar. Stofa og borðstofa með aukinni lofthæð, parket á gólfum, arinn og falleg gluggasetning með útsýni til fjalla. Eldhús með eikarinnréttingu, góðir skápar ofan og neðan borðplötu, ofn í vinnuhæð, helluborð með viftu fyrir ofan og borðkrókur. Inn af eldhúsi er þvottahús þaðan sem innangengt er í bílskúr. Frá þvottahúsinu er hliðarútgangur þar sem gengið er niður á lóð hússins. Frá herbergisgangi er gengið út í 27 m2 sólskála með flísum á gólfi. Á herbergjaganginum eru 3 svefnherbergi, hjónaherbergi með stórum fataskáp og tvö barnaherbergi. Baðherbergi með sturtu og baðkari, flísar á gólfi, innrétting með skápum neðan handlaugar og gólfsíðum skáp til hliðar, stór spegill með lýsingu fyrir ofan handlaug.
Bílskúr, merktur 01-0102, 56,7 m2. Tvöfaldur bílskúr með tveimur rafdrifnum innkeyrsluhurðum, undir skúrnum er stórt geymslurými.
Neðri hæð hússins er skráð hjá Fasteignaskrá íbúð merkt 01-0001, 133,8 m2. Á neðri hæðinni eru tvær tveggja herberga íbúðir, báðar með sérinngangi. Þær skiptast í anddyri, svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Sér bílastæði fyrir íbúðirnar eru neðan við húsið á lóðinni. Stutt er í alla helstu þjónustu, svo sem skóla, leikskóla, matvörubúðir, sund og líkamsrækt.
Nánari upplýsingar veitir Böðvar Sigurbjörnsson, lögfræðingur M.L. og lgf., í síma 660-4777 eða bodvar@fastborg.is
Sjá einnig:
fastborg.is/
Smelltu hér til að fylgjast með mér á Facebook
Smelltu hér til að fylgja mér á Instagram
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um skyldu kaupenda til að skoða fasteignir.
BORG fasteignasala vill því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna áður en gert er kauptilboð og leita til hæfra sérfræðinga til frekari skoðunar.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða fyrir kaupin:
Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8 / 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald kaupsamnings, veðskuldabréfs, hugsanlegt veðleyfi o.fl.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýslugjald vegna fasteignasölu samkvæmt kauptilboði