Opið hús: Hallgerðargata 9, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 04 12. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 11. júní 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Almenn lýsing: Stuðlaborg er 77 íbúða staðsteypt bygging í 5 stigahúsum. Alls eru bílastæði fyrir tæplega 1000 bifreiðar í sameiginlegri bílageymslu undir svæðinu, þar sem auðvelt aðgengi er að rafhleðslustöðvum. Hægt er að fá leigð stæði fyrir íbúa hússins. Hönnuðir byggingarinnar eru hin heimsþekkta danska arkitektastofa Schmidt/Hammer/Lassen og íslenska arkitektastofan VA arkitektar. Sjón er sögu ríkari.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 66,9 fm.
Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 75.150.000 kr.
Nánari lýsing:
Anddyri með góðum fataskáp og parket á gólfi.
Stofa er rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt á yfirbyggðar vestur svalir.
Eldhús er opið inn í stofu og þar er spanhelluborð, ofn, vifta, innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Svefnherbergi með góðum fataskáp og parket á gólfi. Útsýni til sjávar.
Baðherbergi með upphengdu salerni, sturtu, handklæðaofni, innréttingu með góðu plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísalagt í hólf og gólf.
Gólfhitakerfi er í íbúðinni og njóta gólfsíðir gluggar sín mjög vel bæði í stofu og svefnherbergi íbúðar.
Íbúðin er að fullu loftræst inn og út og þarf því ekki að opna glugga til að fá ferskt loft inn. Loftræstingin tryggir betri loftgæði og er góð vörn gegn raka og ryki. Hljóðvist í húsinu er í hávegum höfð hvort sem um er að ræða hljóð utan eða á milli íbúða hússins. Uppbygging útveggja og þaks sem og hljóðeinangrun glugga er eins og best verður á kosið að teknu tilliti til hljóðvistar.
Hægt er að fá leigð stæði í bílakjallara fyrir íbúa hússins.
Geymsla íbúðar er í kjallara hússins og er hún 11,9 fm.
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.