Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Einar Guðmundsson
Vista
svg

1343

svg

1038  Skoðendur

svg

Skráð  5. jún. 2025

hæð

Rauðalækur 61

105 Reykjavík

123.900.000 kr.

794.231 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2016397

Fasteignamat

93.750.000 kr.

Brunabótamat

65.210.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1957
svg
156 m²
svg
6 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 10. júní 2025 kl. 17:00 til 18:00

Opið hús: Rauðalækur 61, 105 Reykjavík. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 10. júní 2025 milli kl. 17:00 og kl. 18:00.

Lýsing

RAUÐALÆKUR 61 - SÉRLEGA FALLEG OG MIKIÐ ENDURNÝJUÐ SEX HERBERGJA HÆÐ MEÐ BÍSLKÚR Í FJÓRBÝLISHÚSI Á RÓLEGUM OG GÓÐUM STAÐ Í LAUGARDALNUM.
3 STOFUR OG 3 HERBERGI / 4HERBERGI OG 2 STOFUR - TVENNAR SVALIR.

Birt stærð eignarinnar hjá HMS er 156 fm og þar af er bískúrinn skráður 30,6 fm og geymsla í kjallara 7,5 fm.
Árið 2024 var skipulagi íbúðarinnar breytt, og hún opnuð talsvert sem gerir það að verkum að hún er einkar björt og falleg. Samhliða og í framhaldi af þessum breytingum hafa verið gerðar síðastliðið ár, miklar endurbætur á íbúðinni, sem nú er nýlokið.
M.a. voru eldhús og baðherbergi endurnýjuð, nýtt parket lagt á alla íbúðina, allt rafmagn í íbúðinni endurnýjað, skipt um alla ofna og allar innihurðir og svalarhurð, svo eitthvað sé nefnt. Sjá nánar um framkvæmdirnar neðar í söluyfirliti.
Nánari lýsing:

Komið er inn um sameiginlegan inngang með íbúð á efstu hæð, inn í stigauppgang með teppi á gólfi og fallegu handriði úr smíðajárni.
Komið inn í íbúðina inn á bjart hol/gang sem tengir saman öll rými í íbúðinni.
Á herbergjagangi eru tvö barnaherbergi, hjónaherbergi og baðherbergi.
Barnaherbergin eru jafnstór og með parketi en þeim mætti breyta í eitt stórt herbergi, þar sem það er léttur veggur á milli þeirra og parketið er lagt undir hann.
Hjónaherbergi með parketi og fataskáp(án hurða). Útgengt er frá hjónaherbergi út á svalir í vestur.
Baðherbergið er með nýjum flísum á veggjum en á gólfi eru eldri flísar. Þar nýtt baðkar með nýjum blöndunartækjum og sturtu, salerni, nýr vaskur í innréttingu með nýjum blöndunartækjum, skápainnrétting, handklæðaofn og gluggi.
Eldhúsið er í enda gangsins og er það opið við borðstofu. Þar er parket á gólfi, ný innrétting frá Kvik með miklu skúffu og skápaplássi, kvarts borðplötu, vönduðum tækjum frá Simens; spanhelluborð með innfelldri viftu, blástursofn í vinnuhæð, innfelldum ísskáp og frysti og innfelldri uppþvottavél.
Samliggjandi þrjár stofur með parketi, borðstofa, stofa með útgengi út á suðursvalir og sjónvarpsstofa sem auðveldlega mætti breyta í fjórða svefnherbergið ef svo bæri við.
Sérlega fallegt nýtt parket með breiðum gólffjölum, listar við gólf og loft og nýjar fulningarhurðir, setja fallegan svip á íbúðina.
Í sameign í kjallara er sérgeymsla með hillum og sameiginlegt þvottahús. Á baklóðinni er bílskúr með hita, rafmagni og rafdrifinni bílskúrshurð. Innst í bílskúrnum er afmarkað rými með nýlegri hurð út í garð. Búið er að leggja rafmagn að bílskúr fyrir hleðslustöð. Fyrir framan bílskúrinn er malbikað plan með hita.
Sameiginlegur garður með fallegum trjágróðri, grasflöt og hellulagðri stétt(verönd). Húsið stendur á baklóð í rólegum botnlanga og vestan við það er stórt útivistarsvæði með leiktækjum fyrir börnin.
Frábær staðsetning í nágrenni við útivistarparadísina í Laugardal með öllu því sem hann hefur upp á að bjóða. Stutt er í skóla, leikskóla sem og Laugardalslaug og World Class, auk þess að ýmsar sérverslanir og veitingastaðir eru í göngufæri.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Einar Guðmundsson
Lögg. fasteignasali
s. 896-8767
einar@egfasteignamidlun.is


Yfirlit yfir nýafstaðnar framkvæmdir í íbúðinni:
Nýtt rafmagn var dregið í alla íbúðina og skipt um alla rofa og tengla. Sett var ný rafmagnstafla fyrir íbúðina og önnur sér greinatafla fyrir eldhúsið.
Skipt var um alla ofna í íbúðinni(fyrir utan handklæðaofn á baði).
Veggur á suðurhlið var endurbyggður og einangraður upp á nýtt.
Ný eldhúsinrétting frá Kvik með hágæða kvarts borðplötu frá Rein steinsmiðju og vönduðum eldhússtækjum frá Siemens.
Á baðherbergi var útveggur endureinangraður og settar nýjar veggflísar. Baðkar, sturta og blöndunartæki voru endurnýjuð.  Sett var ný innrétting með vaski og nýjum blöndunartækjum.
Gólf voru flotuð og nýtt undirlag sett. Ofan á það var svo sett hágæða harðparket frá Álfaborg.
Skipt var út öllum innihurðum og settar sérpantaðar fulningarhurðir frá Birgisson. Einnig var skipt um svalarhurðina í stofunni.
Lagnagrind var yfirfarin og skipt var um tvo einstreymisloka.
Íbúðin er  öll nýlega máluð.

Upplýsingar um viðhaldssögu hússins sem fengin er úr fyrri sölulýsingum eigna í húsinu:
2006: Skólp og dren endurnýjað.
2007: Skipt um alla glugga í stofu íbúðar sem og í andyri.
2008: Þakrennur endurnýjaðar.
2009: Þakjárn á bílskúr endurnýjað.
2011: Loft í bílskúr einagrað og klætt. Ljós og rafmagnstenglar endurnýjaðir og internet tenging lögð inn í bílskúrinn.
2012: Austurhlið húss sprunguviðgerð.
2014: Ný rafdrifin bílskúrshurð sett upp. Sama ár voru skólplagnir myndaðar.
2015: Lagfæring á sökkli á suðurhlið og hitalagnir í gólfi jarðhæðar endurnýjaðar.
2016 Þak hússins málað.
2017: Þakjárn á bílskúr menjað og málað.
2020: Stigagangur málaður.
2020-2022: Garður lagfærður.
2022: 3ja fasa rafmagn lagt fyrir hleðslustöð á bílskúr.
2023: Sprautað í sprungur á suðurhlið og útitröppur múraðar.
2024: Sprautað í sprungur á suðurhlið og sprautað meðfram gluggum íbúðar á suðurhlið.
Einnig hefur rafmagstafla í sameign verið endurnýjuð.






 

EG-fasteignamiðlun sf

EG-fasteignamiðlun sf

Sóltún 20, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. feb. 2024
90.650.000 kr.
98.500.000 kr.
156 m²
631.410 kr.
3. ágú. 2011
26.350.000 kr.
32.000.000 kr.
156 m²
205.128 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
EG-fasteignamiðlun sf

EG-fasteignamiðlun sf

Sóltún 20, 105 Reykjavík