Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Freyja Sigurðardóttir
Ágústa Hauksdóttir
Andrea Guðrún Gunnlaugsdóttir
Glódís Helgadóttir
Hlynur Halldórsson
Valgerður Ása Gissurardóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 2020
svg
424,8 m²
svg
4 herb.
svg
2 svefnh.
svg
Bílskúr

Lýsing

Hraunhamar fasteignasala og Helgi Jón Harðarson sölustjóri. s. 893-2233 -  helgi@hraunhamar.is kynna:  Tvö einbýlishús við Helgadalsveg 10 í Mosfellsdal. Um er að ræða glæsilegt bjálkahús á tveimur hæðum með stórum bílskúr og auka einbýlishúsi á tveimur hæðum.
Eignirnar eru skráðar samtals 424,8 fm, þar af er einbýli 239,5 fm, einbýli 124,6 fm og bílskúr 60,7 fm. Húsin eru fullbúin á vandaðan máta. 


Húsin eru á einstökum stað í Mosfellsdal á 9.277 m2 eignarlóð sem er aðeins 5 mínútum frá Mosfellsbæ. Heimilt er að byggja annað húsnæði, t.d. hesthús, gróðurhús eða iðnaðarhús/hótel allt að 500 m2.
Stór timburverönd með heitum potti. Timburverönd er ca 500 m2, úr rásuðu lerki.
Glæsilegt útsýni í allar áttir. 
Húsin eru byggð árið 2020 og 2021. 


Stærra einbýlið:
Neðri hæð:
Flísalögð forstofa .
Baðherbergi er rúmgott og með flísum á gólfi, vegghengdu salerni, handklæðaofn, sturtu og innréttingu með frístandandi vask. 
Eldhús er með fallegri innréttingu og eyju með stein á borði, gas helluborð.
Stofa/borðstofa er í stóru opnu rými með flísum á gólfi. Úr stofu er gengið út á timburverönd í suðurátt og með heitum potti. 
Gangur er flísalagður, fataskápur, útgengt út á timburverönd.
Skrifstofa er í opnu rými með rennihurð og flísum á gólfi. 
Rúmgóður tvöfaldur bílskúr  (skráður 60,7 m2). Í bílskúr er innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. 
Svefnherbergi er með flísum á gólfi. 
Baðherbergi er með vegghengdu salerni og sturtu. Úr baðherbergi er aðgengi í gufubað og út á timburverönd.

Efri hæð:
Tvö svefnherbergi
,-.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og frístandandi baði, vegghengdu salerni, innréttingu, handklæða ofn og 'walk in' sturtu. 
Sjónvarpshol er í opnu rými. Úr rýminu er gengið út á svalir í suðurátt.

Bílskúr tvöfaldur er innb. í stærra einb. (innangengt) 

Auka einbýlið:
Neðri hæð
Forstofa er með flísum á gólfi. 
Svefnherbergi er með fataskáp. Baðherbergi er með sturtu, vegghengdu salerni, handklæða ofn og innréttingu. Flísar á gólfi. 
Eldhús er með fallegri innréttingu. Í innréttingu er ofn, helluborð, vifta, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. 
Stofa er í opnu rými með eldhúsi. Úr stofu er gengið út á timburverönd í suðurátt.
Efri hæð:
Á efri hæð er rúmgott rými með aðgengi að svölum í suðurátt. 
Svefnherbergi er mjög rúmgott og innaf því er baðherbergi með vegghengdu salerni og handklæða ofn.

Allar nánari uppl veita Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Freyja M Sigurðardóttir lgf. s. 862-4800 freyja@hraunhamar.is


Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.


 

img
Freyja Sigurðardóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Hraunhamar fasteignasala
Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður
Hraunhamar fasteignasala

Hraunhamar fasteignasala

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður
img

Freyja Sigurðardóttir

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður
Hraunhamar fasteignasala

Hraunhamar fasteignasala

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður

Freyja Sigurðardóttir

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður