Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Upplýsingar
svg
Byggt 2009
svg
136,7 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Sunnuhlíð 7 - Glæsilegt heilsárshús á 3.088 m² skógivaxinni leigulóð staðsett undir hlíðum Kaldbaks ofan Grenivíkur. 
** Einstakt útsýni og mikil fjallasýn ** 


Húsið er skráð 136,7 m² að stærð og skiptist í forstofu, gang, sjónvarpshol, eldhús, borðstofu og stofu í opnu rými, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsluloft. 

* Flísar og viðar parket er á gólfum.
* Loft eru tekin upp í helstu rýmum og klædd með birki krossviði.
* Hitaveita er í húsinu og gólfhiti í öllum rýmum
* Hljóðkerfi / hátalarar eru í loftum í alrýminu.
* Sérsmíðaðar innréttingar og skápar frá Tak innréttingum. 
* Lumex sá um lýsingarhönnun.


Forstofa er með flísum á gólfi. Steypt stétt með hitalögnum í er fyrir framan forstofuhurðina og með allri austurhliðinni. 
Þvottahús er við hliðina á forstofunni og með samskonar flísum á gólfi. Þar er grá innrétting, stórir skápar og fellistigi upp á geymsluloft.
Sjónvarpholið er rúmgott alrými með flísum á gólfum og innfelldri lýsingu í loftum. Sjónvarpsveggur er klæddur með viðar parketi. 
Eldhús, vönduð tvílit innrétting og eyja með góðu skápa- og bekkjarplássi. Innfelld lýsing er í lofti og flísar á gólfum.
Borðstofa og stofa eru með gólfsíðum gluggum til þriggja átta og tvöfaldri hurð til suðurs út á verönd. Loft er tekið upp. 
Svefnherbergin eru fjögur, þrjú rúmgóð og tvö af þeim eru með sérsmíðuðum gráum fataskápum og skrifborðum. Viðar parket er á gólfum í öllum herbergjum og loft eru tekin upp í þremur. Stærð herbergja er skv. teikningum 6,7 , 11,0 , 11,3 og 13,0 m².
Baðherbergi er einkar glæsilegt, með flísum á gólfi, grárri innréttingu, upphengdu wc og handklæðaofni. Vegleg sturta með flísum í hólf og gólf og innfelldum tækjum. Útsog er út úr sturtunni og opnanlegur gluggi.

Annað
- Verönd er með suður- og vesturhlið hússins, klædd með harðviði og steypt. Heitur pottur / skel er á veröndinni. Stýring fyrir pottinn er í þvottahúsinu. 
- Gengið er út á veröndina úr stofunni og af ganginum beint á móti baðherbergi.
- Góð aðkoma og rúmgott bílaplan.
- Búið er að jarðvegsskipta með austurhlið hússins fyrir mögulegri stækkun á verönd og bílskúr.  
- Lóðin er skógivaxin leigulóð í eigu Grýtubakkahrepps 3.088,0 m².
- Eignin er í einkasölu

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone