Opið hús: Tröllateigur 13, 270 Mosfellsbær. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 10. júní 2025 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.
Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og vel skipulagt 160,2 m2 5-6 herbergja raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr við Tröllateig 13 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 160,2 m2, þar af raðhús 140,8 m2 og bílskúr 19,4 m2. Eignin skiptist í: Neðri hæð: Forstofa, gestasnyrting, bílskúr, geymsla (nýtt í dag sem herbergi/skrifstofa), eldhús, stofa og borðstofa. Efri hæð: Fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Timburverönd með heitum potti og svalir í suðurátt. Hellulagt bílaplan. Góð staðsetning miðsvæðis í Mosfellsbæ. Stutt í skóla, íþróttasvæði, verslun, heilsugæslu og alla helstu þjónustu.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp. Úr forstofu er innangengt í bílskúr. Bílskúr er skráður 19,4 m2.
Gestasnyrting er með vegghengdu salerni og skolvask.
Geymsla er innaf forstofu. Er með vínyl parketi á gólfi og fataskáp. Er í dag nýtt sem skrifstofa og væri hægt að nýta sem svefnherbergi nr. 5
Stofa/borðstofa er með vínyl parketi á gólfi. Er í opnu rými með eldhúsi.
Eldhús er með innréttingu og flísum á gólfi. Í innréttingu eru tveir ofnar, gaseldavél, vaskur og vifta. Gert er ráð fyrir ísskáp og innbyggðri uppþvottavél. Úr eldhúsi er gengið út á timburverönd í suðurátt. Heitur pottur og útdraganlegt þakskyggni.
Efri hæð:
Gengið er upp stiga og inná svefnherbergisgang. Þar er aðgengi að góðu háalofti.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er með vínyl parketi á gólfi. Úr herbergi er gengið út á svalir í suðurátt.
Svefnherbergi nr. 2 er með vínyl parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 3 er með vínyl parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 4 er með vínyl parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er með innréttingu, 'walk in' sturtu, vegghengdu salerni og handklæðaofn. Flísar á gólfi og veggjum.
Þvottaherbergi er með flísum á gólfi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Lóð: Stór timburverönd með heitum potti í suðurátt og útdraganlegu þakskyggni. Að framan er hellulagt bílaplan og búið að leggja fyrir snjóbræðslu sem á eftir að tengja. Búið er að setja upp hleðslustöð sem fylgir.
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 106.200.000.-
Verð kr. 122.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.