Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðmundur Th Jónsson
Elín D. Guðmundsdóttir
Sigríður Kjartansdóttir
Vista
svg

90

svg

71  Skoðendur

svg

Skráð  6. jún. 2025

fjölbýlishús

Mánatún 3

105 Reykjavík

114.500.000 kr.

927.126 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2299494

Fasteignamat

94.600.000 kr.

Brunabótamat

67.540.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2010
svg
123,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 11. júní 2025 kl. 17:00 til 17:30

Mánatún 3 - Falleg og alveg endurnýjuð 4ra herbergja íbúð með stórri verönd og sér bílastæði í bílageymslu - Opið hús miðvikudaginn 11. júní á milli kl. 17.00 og 17.30 - Verið velkomin

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, vel skipulagða og alveg endurnýjaða 123,5 fermetra 4ra herbergja íbúð á 1. hæð með um 32,3 fermetra skjólsælli verönd í vönduðu fjölbýlishúsi með lyftu við Mánatún í Reykjavík auk geymslu og sér bílastæðis í bílageymslu. Gólfhiti er í allri íbúðinni og er hún með aukinni lofthæð. Starfandi húsvörður er í húsinu og á húsfélagið eina íbúð í húsinu sem nýtt er til að kosta hluta rekstrar hússjóðs.

Fyrirhugað fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2026 er kr. 103.500.000.-

Íbúðin er öll nýendurnýjuð og máluð, sérsmíðaðar innihurðir frá Parka, eldhúsinnrétting frá Fríform, tæki frá AEG og spanhelluborð frá BORA. Pergo parket er á allri eigninni að undanskildu þvottaherbergi og baðherbergi. Einnig er nýlega búið að endurnýja verönd með lerki.

Eignin getur verið laus fljótlega.


Lýsing eignar:
Forstofa, parketlögð og rúmgóð með innbyggðum fataskápum.
Eldhús, opið við stofu, parketlagt og rúmgott með mjög fallegri hvítri innréttingu, ofn í vinnuhæð, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum ísskáp með frysti. Stór eyja með spanhelluborði með innbyggðri viftu og áfastri borðaðstöðu. 
Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð með gólfsíðum gluggum og útgengi á um 32,5 fermetra nýlegir viðarverönd til vesturs með skjólveggjum. Heimilt er að byggja yfir verönd að hluta.
Svefngangur, parketlagður.
Þvottaherbergi, flísalagt með borði og vaski.
Baðherbergi, rúmgott, flísalagt gólf og veggir, handklæðaofn, innrétting, vegghengt wc og stór flísalögð gólfsturta með sturtugleri.
Barnaherbergi I, við forstofu er parketlagt.
Barnaherbergi II, parketlagt og rúmgott.
Hjónaherbergi, rúmgott, parketlagt og með innbyggðum fataskápum.

Í kjallara hússins eru:
Sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu merkt 05N116.
Sérgeymsla, 8,5 fermetrar að stærð, máluð gólf og með aukinni lofthæð.
Sameiginleg stór hjóla og vagnageymsla með útgengið á lóð til norðurs.

Húsið að utan lítur vel út, er klætt og því viðhaldslítið og sameign er öll mjög snyrtileg og það eru tvær lyftur.

Lóðin, sem er 14.963,0 fermetrar að stærð og er sameiginleg með húsunum nr. 7-17 við Mánatún, er fullfrágengin með stórum inngarði þar sem er fjöldi sameiginlegra bílastæða, stórar harðviðarverandir, stórar hellulagðar verandir og stígar og falleg lýsing.  

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð, mjög miðsvæðis þaðan sem stutt er í verslanir, þjónustu, miðborgina, Laugardalinn o.fl. 

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is
 

Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. apr. 2022
68.050.000 kr.
78.500.000 kr.
123.5 m²
635.628 kr.
22. des. 2015
49.050.000 kr.
547.000.000 kr.
1501.2 m²
364.375 kr.
1. jún. 2011
13.950.000 kr.
433.000.000 kr.
1349.4 m²
320.883 kr.
2. des. 2010
3.560.000 kr.
965.000.000 kr.
7338.9 m²
131.491 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone