Lýsing
Miklaborg kynnir í einkasölu: Glæsileg 4ra herbergja íbúð á 4. hæð (efstu hæð) með yfirbyggðar svalir með útsýni. Skráð stærð skv. Fasteignaskrá er 121,8 fm en auk yfirbyggðra svala (23,1 fm) er heildar fermetrafjöldi 144,9 fm. Íbúðinni fylgir gott stæði í bílgeymslu auk 8 fm geymslu í kjallara.
Afar falleg og vel skipulögð eign á frábærum stað í Vesturbænum. Stutt í alla helstu verslun og þjónustu - Grandinn og miðborgin í göngufæri.
Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi, í öðru þeirra er sturta og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Fataskápar eru í svefnherbergjum og forstofu. Allir skápar og innréttingar í íbúðinni eru frá HTH og innbyggður ísskápur, uppþvottavél og gufugleypir frá AEG. Á herbergjum og stofu er eikarparket.
Forstofa með góðum fataskáp og flísum á gólfi.
Barnaherbergi I með góðum fataskáp og parketi.
Hjónaherbergi með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Barnaherbergi II með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi flísalagt hólf og gólf, upphengt salerni, walk-in sturta, góð innrétting, þvottahúsvaskur og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Gestasalerni flísalagt hólf og gólf, upphengt salerni og innrétting undir vaski.
Eldhús, stofa/borðstofa í opnu rými, innréttingar hvítar mattar og spónlögð, svartbæsuð eik, gott skápapláss. Útgengt er úr stofu í 23 fm. Yfirbyggðar svalir.
Sér stæði í bílageymslu beint við inngang fylgir íbúðinni. Þvottaaðstaða fyrir bíla er í bílageymslu.
Grandavegur 42 er fjölbýlishús með lyftu, staðsett á frábærum stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Um er að ræða 141 íbúð í 4 byggingum sem eru 3. til 9. hæða við Grandaveg 42. Í kjallara undir og á milli húsanna eru sérgeymslur sem fylgja hverri íbúð ásamt stæði í bílgeymslu, gestastæðum og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Á milli húsanna og er sameiginlegur garður með leiktækjum fyrir börn.
Góð eign á frábærum stað í Vesturbænum. Stutt er í leikskóla, grunnskóla og alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veita
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is
Kristín Avon Gunnarsdóttir aðst.m. f.sala í síma 772-2959 eða kristinavon@miklaborg.is