Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Vista
svg

1050

svg

764  Skoðendur

svg

Skráð  7. jún. 2025

parhús

Heiðmörk 20V

810 Hveragerði

49.900.000 kr.

656.579 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2210358

Fasteignamat

44.750.000 kr.

Brunabótamat

40.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1972
svg
76 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 15. júní 2025 kl. 14:00 til 14:30

Opið hús: Heiðmörk 20, 810 Hveragerði, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd sunnudaginn 15. júní 2025 milli kl. 14:00 og kl. 14:30.

Lýsing

Fasteignasalan Valhöll og Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905, kynna í einkasölu HEIÐMÖRK 20V, 810 Hveragerði.
Þriggja herbergja parhús á einni hæð á eignarlóð miðsvæðis í Hveragerði. Fasteignamat:
  44.750.000 kr  Næsta árs 2026: 49.500.000.-
Íbúðin er 76,0 fm og er þriggja herbergja á einni hæð með steyptum gafl- og millivegg á milli íbúða. Fram og afturhlið hússins er úr timbri.


- Húsið er skráð 76 m2 að auki er óskráður geymsluskúr í garðinum sem fylgir.
- Eign á einni hæð í botnlanga. Hús þekkt sem Jóns Gunnars hús.
- Eignarlóð með suðurverönd og grónum stórum lokuðum garði. Hundheldur.
- Tvö svefnherbergi, bæði rúmgóð, annað með fataskáp á heilum vegg.
- Sér þvottahús.


Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús og stofa, 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Forstofa: Flísalögð. Af henni er baðherbergi, þvottahús og annað svefnherbergið.
Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og veggjum (málaðar veggflísar) . Vaskinnrétting, upphengt salerni og baðkar. Opnanlegur gluggi er á baði.
Þvottahús: Parketlagt með hillum og snúrum. Lagt var fyrir þvottahúsvaski 2023 (þarf að klára). Þaðan er gengið upp um lúgu upp á háaloft sem er skriðloft en gott geymslupláss. Frýs á veturnar. Hillur og hilluberar sem áður voru á veggjum þvottahússins geta fylgt. 
Svefnherbergi: Parketlagt og rúmgott með síðum glugga. Fataskápur frá 2025. Hurðin á herberginu er til. 
Hjónaherbergi: Parketlagt, rúmgott með skápum á heilum vegg.
Eldhús: Parketlagt með L-laga hvítri innréttingu, eldavél og pláss fyrir uppþvottavél.
Stofa: Parketlögð og björt með síðum gluggum og útgengi á suðurverönd og út í lokaðan garð. Ljóskastarar í stofu geta fylgt.
Lóð: Grasi gróinn með lokuðum garði og timburverönd til suðurs í baklóð. Þvottasnúrur og geymsluskúr er þeim megin lóðarinnar. Að framanverðu á eftir að helluleggja aftur að hluta (eldri hellur fylgja). Suðurgarður; sól frá morgni til kvölds. Sameiginlegt bílaplan í porti. Sandkassi fylgir ekki.

Samantekt: Um er að ræða einstaka eign: Lítið parhús, vel skipulagt og björt eign með suðurverönd og grónum garði.  
Miðsvæðis í Hveragerði, við lítinn botnlanga, stutt í alla helstu þjónustu s.s. leikskólann Óskaland.

Allar nánari upplýsingar veitir Elín Viðarsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 695-8905 eða elin@valholl.is



 

Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. júl. 2022
28.600.000 kr.
42.000.000 kr.
76 m²
552.632 kr.
17. jan. 2020
25.550.000 kr.
26.500.000 kr.
76 m²
348.684 kr.
9. jún. 2015
12.950.000 kr.
16.500.000 kr.
76 m²
217.105 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone