Lýsing
90% fjármögnun! Nýtt og glæsilegt 100fm 4ra herbergja raðhús að Borg, Grímsnesi. Fjölskylduvænt hverfi með laust leikskólapláss.
Hraunbraut 6D: Nýtt glæsilegt raðhús að Hraunbraut 6, Borg í Grímsnesi. Um er að ræða raðhúsalengju með 5 íbúðum. Laust til afhendingar strax. Íbúðin er fullbúin að innan sem utan, en lóð er grófjöfnuð. Stærð íbúðar er um 100 fm.
90% fjármögnun í boði: viðbótarlán frá IMIROX til lögaðila - greiðsludreifing ti einstaklinga . Frekari upplýsingar um lánamöguleika IMIROX á www.imirox.is.
Íbúðin er 4ra herbergja og skiptist upp í forstofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi, og opið rými með eldhúsi og stofu. Innfeld lýsing. Útgengt í suðurgarð um svalahurð í stofu.
Vönduð eldhúsinnrétting og skápar frá HTH. Parket á gólfum, og flísar á baðherbergi.
Baðherbergið er flísalagt með vönduðum Porcelanosa flísum, upphengdu salerni, og innsteypt þröskuldarlaus sturta með öryggisgleri. Blöndunartæki af bestu gerð.
Gólfhiti er í öllum rýmum, með hitastýringu fyrir sérhvert svæði. Vélrænt útsog er í rakarýmum og eldhúsi.
Plejd ljósastýring á innfeldum ljósum.
Klæðning hússins er viðhaldslétt lituð bárujárnsklæðning.
Lóðin skilast grófjöfnuð. 2 bílastæði framan við hús. Leiðslur til að leggja fyrir heitan pott verða til staðar, sem og fyrir garðkrana.
Ídráttarrör fyrir hleðslutæki rafbíla lagt að bílastæði.
Beint fyrir framan raðhúsið er glænýr leikvöllur.
Borg í Grímsnesi er fjölskylduvænt hverfi í mikilli uppbyggingu. Í göngufæri er a finna sundlaug, leikskóla, grunnskóla, og þjónustu við eldri borgara. Ný verslun, bensínstöð og hleðslustöð fyrir rafbíla, líkamsræktarsalur og fleiri mannvirki eru ýmist í byggingu eða í undirbúningi. Enginn biðlisti er í leikskólann og grunnskólann, og mötuneyti sveitafélagsins sér ungviðinu fyrir hollum íslenskum þjóðarréttum. Sveitafélagið hefur ítrekað verið valið besta sveitafélag landsins í þjónustukönnunum. Svæðið er paradís fyrir útivistarfólk. Miklir atvinnumöguleikar á svæðinu.
Selfoss er í 15mín akstursfjarlægð, og Reykjavík í c.a. 45mín akstursfjarlægð.
Frekari upplýsingar um svæðið og sveitafélagið má finna hér: https://www.gogg.is/
Fjármögnun: IMIROX fjármögnun til lögaðila í boði á þessa eign. Frekari upplýsingar um fasteignalán IMIROX á www.imirox.is.
Frekari upplýsingar um þessa fasteign veitir IMIROX í síma 777-2500 eða í tölvupósti info@imirox.com.
Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is
- Söluyfirlit
- Senda fyrirspurn
- Tilboðsgerð
Vegna auglýsingar á vefsvæðinu fasteignir.is:
Eigendur auglýsa eign sína sjálfir án milligöngu og finna til kaupendur. Eigendur tryggja að löggiltur fasteignasali (eða aðili með löggildingu til að annast milligöngu um sölu fasteigna og skipa) annist milligöngu þegar kemur að kauptilboði og / eða kaupsamningsgerð vegna auglýsingar á vefsvæði Vísis (fasteignir.is). Þessi aðili mun þá sjá um skjalagerð, þ.m.t. söluyfirlit, kauptilboð, kaupsamning, veðleyfi og afsal, eftir því sem við á hverju sinni, og sjá um að annast viðskiptin í samræmi við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Þannig er tryggt að varnir gegn peningaþvætti séu virtar og að réttarstaða kaupanda og seljanda er glögg.
Eigendur geta nýtt sér umrædda þjónustu hjá samstarfsaðila e-fasteigna, PRIMA fasteignasölu, en það er ekki skilyrði fyrir notkun kerfisins og stendur aðilum aðeins til boða ef hún hentar öllum hlutaðeigandi.
Verðskrá þjónustunnar er aðgengileg á vef e-fasteigna.