Lýsing
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Eignin er skráð samkvæmt fasteignayfirliti 104,5 fm og þar af er geymsla skráð 9,0 fm.
Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 81.000.000 kr.
Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með skáp og parket á gólfi.
Hol með parket á gólfi.
Stofa/borðstofa í rúmgóðu alrými ásamt eldhúsi. Parket á gólfi. Úgengt á stórar svalir í suð-vestur og þaðan fallegt útsýni.
Eldhús með parket á gólfi, ofn í vinnuhæð, stórt helluborð með háfi yfir og tengi fyrir uppþvottavél.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með parket á gólfi og góða fataskápa.
Svefnherbergi II er rúmgott með skáp og parket á gólfi.
Baðherbegi er rúmgott með bæði baðkar og sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn og flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús er innan íbúðar með flísar á gólfi og skolvask.
Bílastæði fylgir eigninni í lokaðri bílageymslu.
Hleðslustæði á góðu sameiginlegu bílastæði.
Sérgeymsla íbúðar í snyrtilegri sameign í kjallara hússins.
Hjóla- og vagnageymsla við bílageymslu.
Fjölskylduvæn eign á góðum stað nálægt leik- og grunnskóla og allri helstu þjónustu og verslun. Sjón er sögu ríkari.
Nánari upplýsingar um eignina veita Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is og Kristján Baldursson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-3040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.