Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Vala Georgsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 1968
svg
1394,1 m²
svg
0 herb.

Lýsing

Miklaborg kynnir: Einstakt tækifæri í íbúðar- og/eða atvinnuuppbyggingu á Laugarvatni. Hverabraut 16 -18 stendur við bakka Laugarvatns í nálægð við Laugarvatn Fontana með óviðjafnanlegu útsýni yfir vatnið og nágrenni þess. Gullni hringurinn liggur í gegnum Laugarvatn og felast því gríðarlegt tækifæri í uppbyggingu á svæðinu t.d. með skammtíma- eða langtímaleigu í huga. Hverabraut 16 - 18 er 1.394,1 fm bygging sem áður var nýtt sem heimavist hentar því vel sem grunnur að íbúðaruppbyggingu. Hægt er að nýta núverandi byggingarheimild til stækkunar um 422 fm eða jafnvel aukna byggingarheimildir enn frekar með deiliskipulagsbreytingu. Möguleiki á seljendaláni fyrir hluta kaupverðsins til að liðka fyrir kaupum og framkvæmdum. Sveitafélagið Bláskógabyggð eigandi byggingar leitar eftir traustum kaupanda að eigninni sem hefur það að leiðarljósi að styrkja uppbyggingu íbúðar- og atvinnustarfsemi á svæðinu.

Óskað er eftir tilboðum í eignina.

Hverabraut 16-18 er 1.394,1 fm hús á tveimur hæðum auk kjallara og lóðin er 3.632 fm.

1. hæð. 11 svefnherbergi, stórt eldhús og matsalur, minna eldhús, salernis- og sturtuaðstaða, starfsmannaaðstaða og setustofa. Svalir og útiverönd. 2. hæð. 12 svefnherbergi, eldhús, salernis- og sturtuaðstaða og setustofur. Tvennar svalir.

Kjallari. 3 svefnherbergi, 10 geymslur, þrír fjölnotasalir, salernis- og sturtuaðstaða, gufubað búnings- og starfsmannaaðstaða


  • Byggingarréttur að 422 fm stækkun fylgir með.
  • Kaupandi greiðir önnur lögbundin gjöld þ. á m. gatnagerðargjald hyggist hann stækka húsið.
  • Seljendalán getur verið í boði samkvæmt nánara samkomulagi.



Nánari upplýsingar veitir Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is

Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík