Upplýsingar
Byggt 2022
195,6 m²
6 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Lýsing
Fasteignasalan Heimaland ehf. og Guðný Guðmundsdóttir lögg. fasteignasali kynna vandað nýtt einbýlishús í rólegu umhverfi með útsýn yfir sveitina til fjalla.
Húsið er byggt frá grunni af Svavari Valdimarssyni húsasmíðameistara og hefur verið farið skrefinu lengra í frágangi. Eignin er rúmlega hektari eignalands og húsið er 195,6 fm samkvæmt FMR sem skiptist í 153fm íbúðarými og 42,6 fm bílskúr í um 8 til 10 mínútna ökuleið frá Selfossi. Samtals má byggja um 800 fm af húsnæði á eignarlandi sem mega skiptast í 3 hús. íbúðarhúsið skiptist í forstofu, gesta salerni, forstofuherbergi, hol, þvottaherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, svefnherbergisgang, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og innangengum fataskáp inn af einu þeirra ásamt innangengum bílskúr. Búið er að koma fyrir hljóðdúk í rýmum íbúðar. Loftin eru að mestu leyti fljótandi. með kappa lýsingu eða skuggafúgu. Lýsing er að mestu dimmanleg í húsinu og tengd með Plejd ljósastýringu. Gólfhiti og vegghengdir ofnar. Hægt að loka og opna fyrir sérstaka loftun í gegn um gluggakarma í rýmum án þess að opna opnanlegu fögin. Húsið skilast fullbúið að innan en án klæðningar að utan fyrir kaupendur að velja. Mögulegt að fá seljanda til að klára að klæða húsið gegn sanngjörnu verði. Rimar tilheyra Flóahreppi.
Krakkaborg, faglegur og metnaðarfullur,,sveitaleikskóli''(www.krakkaborg.leikskolinn.is/) sem hefur tekið inn börn frá 1 árs aldri
Skólaakstur í Flóaskóla grunnskóli 1-10 bekk (www.floaskoli.is/) framúrskarandi grunnskóli sem vann m.a. skólahreysti 2022 og 2024.
Nánari upplýsingar veitir Guðný Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8216610, tölvupóstur gudny@heimaland.is.
Forstofa er rúmgóð með fataskáp, flísum á gólfi, gengið þaðan inn í forstofuherbergi, gestasalerni og bílskúr.
Gestasalerni er flísalagt með vaski í innréttingu, vegghengdu salerni og innbyggðu matt gylltu blöndunartæki.
Forstofuherbergi er með fataskáp, hljóðdúk með skuggafúgu og kappa lýsingu á gluggavegg, snöggt ljóst ullarteppi á gólfi.
Hol/sjónvarpshol er í miðju húsinu með innfelldum hillum, skáp með tengimöguleikum við net og sjónvarp. Fljótandi hljóðdúkur í lofti með lýsingu.
Þvottaherbergi með hvítri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og stálvask í borði.Flísar á gólfi. Þilofn kominn við afhendingu.
Stofa og borðstofa liggja saman í einu rými og tengjast eldhúsinu, hátt er til lofts með hljóðdúk og kappa lýsingu. útsýni í gegn um stóra glugga á þrá vegu. Gengið út á steypta yfirbyggða verönd.
Eldhús í opnu rými með stofunni og borðstofunni, hvítri innréttingu, eyju með helluborði þar sem viftan er innbyggð í miðju þess. Setuaðstaða við fallegan horn útsýnisglugga gefur eldhúsinu fallega birtu.
Svefnherbergisgangur liggur frá holi og út að gafli á vesturhluta hússins með gler útgangshurð og opnanlegum glugga í endanum sem gefur góða birtu inn. Gengið inn frá svefnherbergisgangi á baðherbergi og þrjú svefnherbergi.
Baðherbergið er rúmgott með útgang út á steypta veröndina, vegghengt salerni, vaskur í innréttingu, stór sturtuklefi með vönduðum innbyggðum matt gylltum blöndunartækjum, sér hönnuðu sturtugleri (komið við afhendingu) og aðstaða fyrir mögulegt baðkar. Handklæðaofn uppsettur fyrir afhendingu.
Svefnherbergin 3 eru rúmgóð með kappalýsingu við einn útvegg. Innfelldur fataskápur í einu herbergi og ullarteppi á gólfi, bogadreginn inngangur í fataskáp í einu þeirra, gluggar á tvo vegu og ullarteppi á gólfi. Stórir gluggar á tvo vegu í einu herberginu, til suðurs og vesturs og vínilparket á gólfi.
Innréttingar, innihurðar og gólfefni: Innréttingar eru hvítar og eik. Sérsmíðuð massíf eik er um vegghengdu ofnana í forstofu og gestasalerni. Einnig á sólbekkjum og borðplötum á baðherbergi og gesta salerni. Innihurðar eru sléttar eikarhurðar, forstofuhurð með gleri. Flísar eru á forstofu, baðherbergjum og þvottaherbergi. Ullarteppi á herbergjum og fljótandi vínil parket á öðrum rýmum er með eikarlit og hvert borð lagt í stórt fiskibeinamynstur. Frágangur á milli gólfefna er gylltur listi þannig að gólfefni fljóta saman.
Bílskúr er 42,6 fm, bjartur með ílöngum vinnuglugga til austurs þar sem lagt er fyrir skolvask. Stórir skápar með eikarlituðum hurðum. Útgengt að aftan út á steypta verönd til austurs/suðurs fyrir morgunsólina. Gólfhitastýringar og þilofn kominn við afhendingu.
Húsið er timburhús og tilbúið fyrir flastningar og klæðningu á veggjum og klæðningu framaná og undir þakkant. Mögulegt að seljandi gangi frá klæðningum og útilýsingu samkvæmt samkomulagi. Útloftun með túðu á þaki komin við afhendingu.
Lóð í kring um húsið er frágengin með möl og grasi. Aðkeyrsla af akvegi er lögð með grófri möl á stórt bílaplan.Steypt undir sorpskýli og steypt stétt við inngangshurð. Sólverönd til suðurs og vesturs undir þaki/skyggni er steypt.
Vinnuhús, ca 15 fm skúr með afstúkuðu salerni. Tengdur við rafmagn, vatn og frárennsli. Þarf að endurnýja vatnslagnir og salerni.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun.
www.heimaland.is, Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.