Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Vista
svg

588

svg

443  Skoðendur

svg

Skráð  11. jún. 2025

fjölbýlishús

Hólabraut 3

220 Hafnarfjörður

59.900.000 kr.

690.888 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2075771

Fasteignamat

53.050.000 kr.

Brunabótamat

45.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1980
svg
86,7 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 16. júní 2025 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Hólabraut 3, 220 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 02 03. Eignin verður sýnd mánudaginn 16. júní 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Novum fasteignasala kynnir:

Björt og rúmgóð 3ja herbergja endaíbúð á efstu hæð við Hólabraut 3 í Hafnarfirði. Um er að ræða einstaklega vel skipulagða íbúð á annarri og jafnframt efstu hæð þar sem hver fermetri nýtist vel.

Heildarstærð eignarinnar er 86,7 fm, þar af er íbúðin sjálf 78,5 fm og sérgeymsla í kjallara 8,2 fm, skv. skráningu Þjóðskrár Íslands. Fyrirhugað fasteignamat árið 2026 er 57.050.000 kr.  

Forstofa: Komið er inn í snyrtilega forstofu með góðum fataskápum.
Alrými: Eldhús og stofa mynda opið og bjart alrými. Útgengt er úr stofu á rúmgóðar svalir.
Eldhús: Hvítt, tímalaust eldhús með snyrtilegri innréttingu, eldavél með ofni og háf yfir. Vel nýtt rými með góðu vinnuplássi.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni. Í báðum eru rúmgóðir fataskápar.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir, hvít innrétting, baðkar með sturtu.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er staðsett á sömu hæð, aðeins nokkrum skrefum frá íbúðinni.
Sérgeymsla er í kjallara hússins og auk þess er hefðbundin sameign með hjóla- og vagnageymslu sem og þurrkherbergi.

Viðhald:
Árið 2021 voru þakrennur endurnýjaðar.
Árið 2022 var ráðist í umfangsmiklar steypuviðgerðir og málun á öllum veggjum hússins ásamt svölum, svalagólfum og handriðum. Allir gluggalistar einnig málaðir.
Árið 2024 var skipt um þak.
 
Hólabraut 3 er einstaklega vel staðsett eign í kyrrlátu og fjölskylduvænu hverfi. Stutt er í alla helstu þjónustu, svo sem leikskóla, grunnskóla, verslanir og almenningssamgöngur. Einnig stutt í náttúruperlur, útivistarsvæði og miðbæ Hafnarfjarðar.

Nánari upplýsingar veitir Telma Sif Reynisdóttir, lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 7737223, eða með tölvupósti á telma@novum.is.

NOVUM fasteignasala

Bæjarlind 4, 201 Kópavogi
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. nóv. 2020
33.400.000 kr.
36.750.000 kr.
86.7 m²
423.875 kr.
26. jan. 2018
27.800.000 kr.
33.000.000 kr.
86.7 m²
380.623 kr.
16. nóv. 2007
16.920.000 kr.
17.200.000 kr.
86.7 m²
198.385 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

NOVUM fasteignasala

Bæjarlind 4, 201 Kópavogi
phone