Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Dan Valgarð S. Wiium
Ásta María Benónýsdóttir
Vista
einbýlishús

Mánabraut 3

780 Höfn í Hornafirði

Tilboð

Fasteignanúmer

F2181045

Fasteignamat

70.650.000 kr.

Brunabótamat

103.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1983
svg
214,8 m²
svg
6 herb.
svg
Bílskúr

Lýsing

Kjöreign ehf., fasteignasala, Ármúla 21, R. sími 533-4040 kynnit frábærlega vel staðsett einbýlishús við Mánabraut 3, Hornafirði. Birst stærð er 214,8 fm. Húsið stendur við Silfurnesgoflvöllinn í lokaðri götu. Á árunum 2007-2008 var húsið meira og minna endurnýjað að innanverðu og málað að utanverðu 2013. Lýsing, neðri hæðin.  
Forstofa er með náttúruflísum á gólfi við innganginn og parketi á gólfi innar í rýminu. Skápur og fatahengi eru í forstofunni. Gengið er inn á gestasalerni og í þvottahús úr forstofunni.
Á gestasalerni eru náttúruflísar á gólfi, mósaik flísar á veggjum og sturta. Þvottahús er rúmgott með lítilli geymslu inn af þvottahúsinu. Eldhúsið eldhúsið var endurnýjað árið 2007 en ný eldavél og háfur voru sett 2024. Parket er á gólfi. Hvít Kvik innrétting og eyja með gegnheilli eik á borðfleti. Ekki er til staðar uppþvottavél. Í stofu er parket á gólfi, gluggar eru til suðurs og vesturs og útgengt á fallegan pall í garðinum. Eitt svefnherbergi er á neðri hæðinni inn af stofunni og er parket á gólfinu þar. Parketlagður stigi liggur upp á efri hæðina.
Lýsing efri hæðin.
Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi, sjónvarpshol og baðherbergi. Parket er á öllum gólfum nema á baðherbergi sem er flísalagt. Herbergi á efri hæðinni eru að hluta til undir súð svo gólfflötur er stærri en fram kemur í skráðum fermetrum. Hjónaherbergið er rúmgott og var sameinað áður úr tveimur herbergjum. Þar eru sérsmíðaðar innréttingar með miklu skápaplássi. Úr hjónaherbergi er útgengt  á svalir sem snúa til vesturs með óborganlegu útsýni yfir fjörðinn og jöklana. Á baðherberginu er gólfhiti, mósaikflísar á veggjum að hluta, baðkar og innréttingar frá 2008.
Bílskúrinn er steyptur, með steyptu gólfi og rafmagnskyndingu, búið er að einangra loft en eftir að setja plötur yfir, vatn og rafmagn eru í skúrnum. Gott mannhæðarhátt geymslurými er á lofti bílskúrsins með góðu aðgengi.
Garðurinn er einkar glæsilegur og skjólgóður. Pallar eru umhverfis húsið á suður og vesturhlið og 8 manna rafmangspottur er á pallinum við bílskúrinn.
Miklar endurbætur voru verið gerðar á húsinu á árunum 2007 og 2008 og þá voru lagnir og rafmagn einnig endurnýjað og yfirfarið að hluta (frárennslis- og neysluvatnslagnir í eldhúsi og á baðherbergi, en ekki í þvottahúsi). ÓSKAÐ ER EFTIR TILBOÐUM Í EIGNINA.
Stærðir; Neðri hæðin er skráð 105,8 fm., efri hæðin er skráð 71,5 fm. og bílskúrinn er skráður 37,5 fm. birt heildarstærð er 214,8 fm.
Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar í síma 533-4040 eða á kjoreign@kjoreign.is
Dan Wiium lögm. og lögg. fasteignsali gsm. 896-4013 eða á dan@kjoreign.is
Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 eða á asta@kjoreign.is

img
Dan Valgarð S. Wiium
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Kjöreign fasteignasala
Ármúla 21, 108 Reykjavík
Kjöreign fasteignasala

Kjöreign fasteignasala

Ármúla 21, 108 Reykjavík
phone
img

Dan Valgarð S. Wiium

Ármúla 21, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
31. jan. 2020
40.250.000 kr.
60.000.000 kr.
214.8 m²
279.330 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Kjöreign fasteignasala

Kjöreign fasteignasala

Ármúla 21, 108 Reykjavík
phone

Dan Valgarð S. Wiium

Ármúla 21, 108 Reykjavík