Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1980
193,8 m²
4 herb.
2 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Lýsing
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Vallartröð 5 Eyjafjarðarsveit - Skemmtilegt 4 herbergja einbýlishús á einni hæð með bílskúr og geymsluskúr við litla botnlangagötu - stærð 193,8 m2
Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu og borstofu, baðherbergi, 3 svefnherbergi, þvottahús, bílskúr og geymsluskúr á lóð. Einnig er í húsinu svefnloft og geymsluloft innaf.
Forstofa er með flísum á gólfi.
Eldhús er með flísum á gólfi, ljósri spónlagðri viðarinnréttingu með dökkri bekkplötu og flísum á milli skápa. Gaseldavél.
Stofa og borðstofa eru með flísum á gólfi og þar eru loftin tekin upp og gluggar til þriggja átta. Flísalagður arin er í stofunni og útgangur á pall til suðurs. Stórir gluggar eru á stafni hússins til vesturs. Farið er uppá svefnloft úr stofunni og þaðan inná geymsluloft.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, ljósri innréttingu, upphengdu wc, handklæðaofni og walk-in sturtu. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu.
Svefnherbergin eru þrjú, tvö með harð parketi á gólfi og eitt án gólfefna. Í hjónaherberginu er góður hvítur fataskápur.
Þvottahús er með dökkum flísum á gólfi, hvítri innréttingu, salerni og tveimur útgöngum, öðrum út á bílastæði til austurs og hinum út á pall til suðurs.
Bílskúr er skráður 52,4 m2 að stærð og er hann með tveimur gönguhurðum og innkeyrsluhurð. Heitt og kalt vatn er í skúrnum og rafmagn. Rafknúinn hurðaropnari á innkeyrsluhurð.
Geymsluskúr er á lóð, um15 m2 að stærð með steyptu gólfi og niðurfalli, einangraður og í honum er rafmagn. Skúrinn er ekki að fullu kláraður.
Lóðin er snyrtileg. Framan við húsið er malbikað rúmgott bílaplan og steypt stétt með hita í að aðaldyrum (affallið af húsinu). Hellulögð verönd er framan við húsið og einnig er hellulögð verönd sunnan við hús auk timburverandar. Á timburveröndinni er heitur pottur og hitastýring fyrir hann er í bílskúr.
Annað:
- Malbikað bílastæði er fyrir framan bílskúr og með austurhlið bílskúrs og að geymsluskúrnum.
- Húsið málað að utan árið 2016.
- Þakrennur og þakkantur endurnýjað árið 2016.
- Búið er að skipta um gler að hluta.
- Þakpappi endurnýjaður á bílskúr árið 2021
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Skemmtilega staðsett hús í botnlangagötu í Hrafnagilshverfi.
- Fyrirhugað fasteignamat eignar fyrir árið 2026 er kr. 83.550.000.-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. maí. 2024
66.150.000 kr.
87.500.000 kr.
10101 m²
8.663 kr.
4. mar. 2014
28.350.000 kr.
29.000.000 kr.
193.8 m²
149.639 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025