Lýsing
Miklaborg kynnir í einkasölu: Glæsileg 4ra herbergja íbúð á 4. hæð (efstu hæð) með yfirbyggðar svalir með útsýni við Grandaveg 42E. Skráð stærð skv. Fasteignaskrá er 121,8 fm en auk yfirbyggðra svala (23,1 fm) er heildar fermetrafjöldi 144,9 fm. Íbúðinni fylgir gott stæði í bílgeymslu auk 8 fm geymslu í kjallara.
Afar falleg og vel skipulögð fjölskyldueign á frábærum stað í Vesturbænum, gott útsýni og skipulag. Stutt í alla helstu verslun og þjónustu - Grandinn og miðborgin í göngufæri.
Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi, í öðru þeirra er sturta og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Fataskápar eru í svefnherbergjum og forstofu. Allir skápar og innréttingar í íbúðinni eru frá HTH og innbyggður ísskápur, uppþvottavél og gufugleypir frá AEG. Á herbergjum og stofu er eikarparket.
Forstofa með góðum fataskáp og flísum á gólfi.
Barnaherbergi I með góðum fataskáp og parketi.
Hjónaherbergi með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Barnaherbergi II með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi flísalagt hólf og gólf, upphengt salerni, walk-in sturta, góð innrétting, þvottahúsvaskur og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Gestasalerni flísalagt hólf og gólf, upphengt salerni og innrétting undir vaski.
Eldhús, stofa/borðstofa í opnu rými, innréttingar hvítar mattar og spónlögð, svartbæsuð eik, gott skápapláss. Útgengt er úr stofu í 23 fm. Yfirbyggðar svalir.
Sér stæði í bílageymslu beint við inngang fylgir íbúðinni. Þvottaaðstaða fyrir bíla er í bílageymslu.
Grandavegur 42 er fjölbýlishús með lyftu, staðsett á frábærum stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Um er að ræða 141 íbúð í 4 byggingum sem eru 3. til 9. hæða við Grandaveg 42. Í kjallara undir og á milli húsanna eru sérgeymslur sem fylgja hverri íbúð ásamt stæði í bílgeymslu, gestastæðum og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Á milli húsanna og er sameiginlegur garður með leiktækjum fyrir börn.
Góð eign á frábærum stað í Vesturbænum. Stutt er í leikskóla, grunnskóla og alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veita
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is
Kristín Avon Gunnarsdóttir aðst.m. f.sala í síma 772-2959 eða kristinavon@miklaborg.is