Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Brekkustígur 14

101 Reykjavík

81.900.000 kr.

798.246 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2001050

Fasteignamat

73.650.000 kr.

Brunabótamat

48.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1959
svg
102,6 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 16. júní 2025 kl. 18:00 til 18:30

OPIÐ HÚS AÐ BREKKKUSTÍG 14, 3HH, MÁNUDAGINN 16. JÚNÍ KL. 18:00-18:30. VERIÐ VELKOMIN !

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir:  FRÁBÆR STAÐSETNING - Virkilega falleg og mjög rúmgóð 4ra herbergja íbúð á 3. hæð á eftirsóttum stað í vesturbæ Reykjavíkur. Stór svefnherbergi, baðherbergi endurnýjað og nýlegt eikarplankaparket á öllum rýmum nema í eldhúsi eru korkflísar og baðherbergi er flísalagt. Gluggar endurnýjaðir og þak nýlega yfirfarið og málað. Þrifaleg sameign og útgengt úr kjallara út á grænt, skjólgott og afar vinsælt leiksvæði í bakgarði. Allar nánari upplýsingar gefur Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is

Nánari lýsing:   Húsið var byggt 1959 er staðsett í gamla vesturbænum og í því eru 7 íbúðir. Heildarstærð íbúðarinnar skv. Þjóðskrá er 102,6  fm og er íbúðin 98,6 fm en geymsla 4 fm. Íbúðin skiptist í forstofuhol, stofu, þrjú svefnherbergi, eldhús og baðherbergi. 

Forstofuhol: Rúmgott með tvöföldum fataskáp og fatahengi.
Eldhús: Með rúmgóðri U-laga viðarinnréttingu. Gluggi við eldhúsvask. Keramikhelluborð og ofn í vinnuhæð. Stálvifta. Korkflísar á gólfi. Borðkrókur við enda innréttingar.
Stofa/borðstofa: Í sameiginlegu rými með útgengi út á svalir í norðvestur.
Svefnherbergi 1 og 2: Mjög rúmgóð með stórum kvistgluggum og innbyggðum skápum.
Svefnherbergi 3: Nokkru minna með útsýni á svalirnar og í bakgarðinn. Tvöfaldur laus fataskápur fylgir.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, baðkari og sturtu. Innrétting við vask. Handklæðaofn. 
Sameign: Við inngang íbúðar er aðgengi upp á sameiginlegt geymsluloft sem nær yfir alla hæðina. Í kjallara er sérgeymsla ásamt sameiginlegu þvottahúsi, þurrkherbergi  og sameiginlegri hjólageymslu. Sameiginlegur bakgarður er við grænt opið leiksvæði.
Virkilega falleg 4ra herbergja íbúð í grónu hverfi gamla vesturbæjarins. Göngufæri í Vesturbæjarskóla og stutt í miðbæinn og út á Granda í alla þá þjónustu sem þar er að finna.  Allar nánari upplýsingar gefur Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða  1.6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.500,-
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um kr. 50.000.-
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 65.000,- með vsk.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. maí. 2007
19.060.000 kr.
29.500.000 kr.
102.6 m²
287.524 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone