Lýsing
Eignin er í vinsælu og grónu hverfi í Reykjavík. Frábær staðsetning þar sem stutt er í fjölda versluna og stutt í alla þjónustu, skóla og leikskóla. Laugardalurinn er í göngufæri frá ásamt miðbænum.
Eignin er laus við kaupsamning.
* Smelltu hérna til að horfa á videó af eigninni *
Skráð stærð eignar samkvæmt Þjóðskrá Íslands er 102,40 fm þar af er geymslan 4.9 fm.
Fasteignamat 2025 er 74.650.000 kr.
Íbúðin er á jarðhæð og skiptist upp í anddyri, tvö svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi og þvottahús innan íbúðar, ein geymsla er innan íbúðar og 2 geymslur í sameign. Hellulög pallur til suðurs og nóg af bílastæðum á lóðinni.
Nánari lýsing:
Anddyri með fataskáp parket á gólfi..
Stofan rúmgóð í sameiginlegu rými með borðstofu og eldhúsi. Útgengt á verönd sem er afgirtur að hluta, parketi á gólfi
Eldhús er með innréttingu sem er rúmgóð, helluborð, bakarofn og vifta. Gráar flísar á gólfi.
Hjónaherbergi með fataskáp sem nær upp í loft og parket á gólfi.
Barnaherbergi með fataskáp sem nær upp í loft.
Baðherbergi með innréttingu, sturtu, upphengt salerni og flísalagt bæði í hólf og gólf.
Þvottahús er rúmgott og er innan íbúðar.
Geymsla er innan íbúðarinnar ásamt 2 sérgeymslum í sameign.
Sameign er vel við haldið og snyrtileg.
Falleg eign í góðu fjölbýli, mjög miðsvæðis.
Eignin hefur fengið viðurkenningu Reykjavíkurborgar fyrir lóðarfrágang.
Nánari upplýsingar veitir : Inga Reynis í síma 820-1903 eða á tölvunetfanginu inga@gimli.is
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...