Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
svg

513

svg

371  Skoðendur

svg

Skráð  12. jún. 2025

raðhús

Borgarhlíð 2b

603 Akureyri

82.000.000 kr.

543.406 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2145329

Fasteignamat

72.100.000 kr.

Brunabótamat

76.560.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1977
svg
150,9 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 18. júní 2025 kl. 16:00 til 17:00

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur  -  466-1600  -  linda@kaupa.is 

Borgarhlíð 2b, 603 Akureyri - Vönduð og vel viðhaldin 5 herbergja raðhúsaíbúð á tveimur hæðum með sambyggðum bílskúr á vinsælum stað í Þorpinu. Stutt er í leik- og grunnskóla ásamt íþróttasvæði Þórs. Heildarstærð eignar er 150,9 m² en þar af telur bílskúrinn 23,6 m².

Íbúðin skiptist með eftirfarandi hætti:
Neðri hæð: forstofa, hol, snyrting, tvö svefnherbergi og bílskúr þar sem tengt er fyrir þvottavél og þurrkara.
Efri hæð: eldhús, stofa, baðherbergi, hjónaherbergi og sjónvarpshol sem áður var fjórða svefnherbergið. 


Neðri hæð - nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með steinteppi á gólfi. Góðir fataskápar og innrétting með skolvask. Hluti af forstofunni var áður þvottahús og hefur forstofan því verið stækkuð 
Hol neðri hæðar er með ljósum flísum á gólfi og hvítum vegghengdum skenk. Úr holinu er teppalagður járnstigi upp á efri hæð. 
Snyrting er með þiljum á veggjum og gólfi ásamt nettum hvítum vaskaskáp og speglaskápum fyrir ofan. 
Svefnherbergi I: er með ljósum flísum á gólfi og hefur herbergið verið stækkað m.v. upprunalegar teikningar. Úr þessu herbergi er hurð út á timburverönd sem snýr til vesturs. 
Svefnherbergi II: er með plastparketi á gólfi og hefur herbergið verið stækkað m.v. upprunalegar teikningar á kostnað geymslu sem áður var. Í herberginu er fataskápur.
Bílskúr er skráður 23.6 m² að stærð og innangengt í hann úr holi. Þar eru flísar á gólfi, hillur og eldri innrétting. Í bílskúr er nýleg rafdrifin innkeyrsluhurð með inngönguhurð. Í bílskúr er einnig tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 3ja fasa rafmagn og hleðslustöð.

Efri hæð - nánari lýsing:
Eldhús var endurnýjað fyrir 15-20 árum síðan. Þar er vönduð U-laga innrétting frá Ými með keramik helluborði og stæði fyrir ísskáp og bakaraofn í vinnuhæð. Ísskápur, bakaraofn og uppþvottavél voru keypt ný 2024 og fylgja þessi tæki með við sölu. Gott skápa- og bekkpláss er í eldhúsinu. 
Stofa er með parketi á gólfi og þar eru loftin tekin upp. Úr stofu er útgengt á rúmgóðar svalir sem snúa til vesturs. 
Baðherbergi er rúmgott með flísum bæði á gólfi og veggjum. Þar er ljós sprautulökkuð innrétting, upphengt wc, handklæðaofn. Sturta er flísalögð með aðfellanlegum sturtuglerjum.  
Svefnherbergi III (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og nýlegum ljósum fataskápum með góðu plássi. 
Sjónvarpshol er með parketi á gólfi og opnanlegum glugga. Þar var áður fjórða svefnherbergið og mögulegt er að breyta því aftur í svefnherbergi.  

Annað:
- Útidyrahurðastykki og bílskúrshurð voru endurnýjuð árið 2021
- Svalahurð og gluggastykki í stofu endurnýjað um 2020.
- Garðurinn er gróinn og snyrtilegur með timburverönd og skjólveggjum að hluta. Þar er um 8 m² geymsluskúr sem er með rafmagni. 
- Hitaþráður er í þakrennum. 
- Fyrirhugað er að endurnýja þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone