Upplýsingar
Byggt 1942
208 m²
6 herb.
1 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Opið hús: 3. júlí 2025
kl. 16:30
til 17:30
Opið hús: N-Eyvindarstaðir Álftanes , 225 Garðabær. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 3. júlí 2025 milli kl. 16:30 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
N- Eyvindarstaðir er glæsilegt hús á 1430 fm verðlaunalóð við Asuturtún á Álftanesi/Garðabæ. Eignin hefur fengið gott viðhald síðustu árin. Húsið er á tveimur hæðum og er skráð 147,7 fm og er byggt árið 1942. Tvöfaldur 60,3 fm bílskúrinn var svo byggður árið 1985. Samtals er eignin skráð 208 fm. Mögulega væri hægt að byggja á lóðinni eða byggja við húsið.Húsið skiptist þannig:
Efri hæð skiptist í tvær samliggjandi stofur, eldhús og herbergi.
Neðri hæð skiptist í baðherbergi, þrjú svefnherbergi og sér fataherbergi. Þvottaherbergi er innaf baðherbergi. Köld geymsla er undir stiga.
Gengið er inn í opið og bjart andyri með flísum á gólfi. Gengið er upp nokkrar tröppur upp á efri hæð Eldhúsið er bjart og með rúmgóðum innréttingu. Flísar eru á gólfi og glugger á tvo vegu. Stofurnar eru sérlega glæsilegar og liggja saman. Gengið er frá stofu út á timburverönd. Parket er á stofugólfi og tvöföld hurð út verönd. Á hæðinni er einni stórt parketlagt herbergi með glugga á tvo vegu. Frá andyri er einnig gengið niður nokkrar tröppur að neðri hæð. Baðherbergið er mjög rúmgott og er flísalagt í hólf og golf. Góðar Innréttingar, handklæðaofn og flísalögð sturta. Á hæðinni eru í raun fjögur herbergi. Rúmgott hjónaherbergi, tvö auka svefnherbergi og fataherbergi. Parket er á öllum herbergjum og einnig á gangi.
Bílskúrinn er tvöfaldur og rúmar vel tvo bíla. Tvær stórar rafdrifnar hurðar eru í bílskúr sem er um 60 fm. Gengið er í bílskúr að framan. Þar fyrir innan er ágætis geymslurými.
Um er að ræða einstaklega fallega og vel með farna eign. Þá er lóðinni sérstaklega vel sinnt og er í algerum sérflokki.
N-Eyvindarstaðir eru í raun við Austurtún 17.
Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur hilmar@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook