Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
svg

66

svg

51  Skoðendur

svg

Skráð  12. jún. 2025

fjölbýlishús

Vetrarbraut 2-4 íb116

210 Garðabær

69.800.000 kr.

966.759 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2534858

Fasteignamat

2.334.750.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
72,2 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 14. júní 2025 kl. 13:00 til 15:00

-- Verið hjartanlega velkomin í sýningaríbúð í Vetrarbraut 4 - norður inngangur (Miðgarðsmegin) --

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir: Nýjar íbúðir í svansvottunarferli. Hver íbúð með loftskiptikerfi! Um er að ræða góða 2ja herbergja íbúð með svalir. Íbúð merkt:0116, sem skilast fullbúin án gólfefna. Íbúðin er alls 72,2fm að stærð á 1. hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin sjálf er skráð 65,3fm og skiptist í anddyri, alrými með eldhúsi og stofu með útgengi út á svalir, 1 svefnherbergi, baðherbergi  og þvottaherbergi og sér geymslu í sameign merkt: 0051, skráð 6,9fm. ásamt bílstæði í bílakjallara merkt: B07.   Allar nánari upplýsingar, teikningar, og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Darri Hilmarsson, fasteignasali í GSM: 7676-0000 eða darri@fstorg.is 

Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉR
Sækja söluyfirlit HÉR

Almennar upplýsingar 
Vetrarbraut 2 - 4 er nýtt fjölbýlishús í nýju og heillandi hverfi sem rís miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu í nánd við Vífilsstaði, golfvöll GKG, Heiðmörk og nýja íþróttaaðstöðu í Miðgarði, Garðabæ. Íbúðirnar eru einstaklega vel hannaðar, í svansvottunarferli, með gæði og þægindi í fyrirrúmi. Innréttingar eru vandaðar og allt efnisval smekklegt og tímalaust. Í hverri íbúð er loftskiptikerfi sem eykur loftgæði, stuðlar að heilnæmu innilofti og bætir líðan íbúa. Í bílakjallara fylgir öllum íbúðum eitt til tvö bílastæði og sumum þeirra fylgir einnig frístundaskúr eða bílskúr. Hverfið nýtur sterkra innviða Garðabæjar auk þess sem stutt er í marga af stærstu verslunarkjörnum höfuðborgarsvæðisins og fjölbreytta þjónustu. Góðar tengingar eru við stofnbrautir. Skipulag svæðisins hefur hlotið alþjóðlegu umhverfisvottunina BREEAM.
Tvö fjögurra hæða staðsteypt fjölbýlishús með inngarð. Samtals 72 íbúðir í 6 stigagöngum Tveggja hæða niðurgrafinn bílakjallari með geymslum, bílskúrum.  Samtals 115 bílastæði á lóð og í bílakjallara. Húsin eru í svansvottunarferli. Sjá nánar skilalýsingu*

Utanhússfrágangur
Klæðning: Flísar og álklæðning (báru og slétt), náttúrulegir jarðlitir.
Þak: Þakplötur eru steinsteyptar og vatnshalli formaður í steypu. Viðsnúið með gróðurþekju, þykk einangrun og drenlag.
Gluggar og hurðir: Ál/tré gluggar og hurðir, hvítir að innan og koxgráir að utan.
Lóð: Fullfrágengin skv. landslagsuppdráttum, snjóbræðsla á gönguleiðum, rafhleðslurör í jörð, 2 hleðslustöðvar á lóð.

Innanhússfrágangur 
Gólfefni: Baðherbergi og þvottahús flísalögð, annars afhent án gólfefna.
Loft: Spörtluð og máluð; dúkloft í sumum þvottahúsum.
Veggir: Léttir innveggir með steinull, rakavörn í votrýmum, allir veggir sandspartlaðir og málaðir.
Hurðir: Yfirfelldar, hvítar hurðir frá Parka.
Innréttingar: Frá VOKE-III, plastlagðar með kvarssteins borðplötum, svört handföng. Flísar: 60x60 
Hitakerfi: Hefðbundið ofnakerfi, gólfhiti og handklæðaofnar á baðherbergjum.
Loftskipti: Sér samstæða fyrir hverja íbúð.
Raflagnir: Ljósleiðari, myndavéladyrasími, hvítir rofar og tenglar.

Tæki og búnaður
Eldhústæki (flest frá Siemens): Helluborð, ofn, ísskápur, uppþvottavél.
Háfar: Falmec Sophie hangandi eða Bosch innbyggðir.

Sameignir
Stigagangar: Málaðir veggir, teppalögð gólf, flísar í anddyri, burstuð stállyfta.
Geymslur: Slípaðir og málaðir veggir/gólf með slitþolinni málningu.
Hjólageymsla: Í hvoru húsi.
Djúpgámar: 6 talsins, rusl flokkað skv. reglum Garðabæjar.

Hönnun og framkvæmdir
Arkitektar: Arkís arkitektar.
Verkfræðihönnun: Þráinn & Benedikt, LX teiknistofa.
Framkvæmdaraðili: Framkvæmdarfélagið Arnarhvoll.
Sjá nánar skilalýsingu*
 

img
Sigurður Gunnlaugsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Sigurður Gunnlaugsson

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Sigurður Gunnlaugsson

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ