Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Knútur Bjarnason
Rúnar Þór Árnason
Gunnar Sv. Friðriksson
Hólmar Björn Sigþórsson
Linda Björk Ingvadóttir
Kristján Þór Sveinsson
María Steinunn Jóhannesdóttir
Ragnheiður Árnadóttir
Vista
svg

627

svg

522  Skoðendur

svg

Skráð  13. jún. 2025

hæð

Móabarð 8

220 Hafnarfjörður

96.500.000 kr.

693.247 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2078214

Fasteignamat

77.800.000 kr.

Brunabótamat

63.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1958
svg
139,2 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
Opið hús: 19. júní 2025 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Móabarð 8, 220 Hafnarfjörður. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 19. júní 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Móabarð 8, 220 Hafnarfirði:

Um er að ræða fallega 6 herbergja efri sérhæð og ris á góðum og rólegum stað á Holtinu í Hafnarfirði. Eignin hefur verið talsvert endurnýjuð. Birt stærð eignar er 139,2 en er þó stærri þar sem hluti hennar er undir súð. Einstaklega glæsilegt útsýni er út fjörðinn. Umhverfis húsið er sameign gróinn og fallegur garður með 16 fermetra garðhús / geymsla sem fylgir eigninni. Bílskúrsréttur fylgir íbúðinni.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Eignin skiptist í:
Hæð: Forstofa, eldhús, stofu / borðstofu, hol / gangur, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús í sameign í kjallara, garðhýsi / geymsla á lóð.
Ris: Tvö svefnherbergi, gangur, gestasalerni og geymsla. 

Nánari lýsing:
Hæð:
Sérinngangur.
Forstofa: Komið er inn í forstofu með fatahengi og flísum á gólfi. 
Hol / gangur: Með nýjum hvítum fataskáp, parket á gólfi. 
Stofa / borðstofa: Stór og björt stofa og borðstofa, útgengt er út á vestur svalir, parket á gólfi. 
Eldhús: Bjart með glugga í tvær áttir, borðkrókur, hvít innrétting, nýr bakarofn, nýtt spanhelluborð, háfur, flísar á gólfi.
Baðherbergi: Með nýrri innréttingu og skáp, speglaskápur, baðker, upphengt salerni, hiti í gólfi, flísalagt í hólf og gólf. 
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi, nýir hvítir fataskápar, parket á gólfi. 
Svefnherbergi 2: Rúmgott svefnherbergi, búið að breyta í sjónvarpsherbergi en lítið mál að breyta aftur í herbergi, parket á gólfi.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er í kjallara, gengið niður úr holi og þaðan er útgengt út í garð.

Ris: Parketlagður stigi úr forstofu.
Gangur: Parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Rúmgott svefnherbergi undir súð, fataskápur, útgengt út á vestur svalir með frábæru útsýni, parket á gólfi. 
Svefnherbergi 4: Rúmgott svefnherbergi undir súð, geymsla undir súð, geymsla fyrir hljóðkerfi undir súð, parket á gólfi. 
Gestasalerni: Með innréttingu og speglaskáp, þakglugga, flísar á gólfi.
Geymsla: Undir súð með parket á gólfi. 

Húsið: Húsið er steinsteypt og byggt 1958. Í húsinu eru tvær íbúðir. 
Lóð: Gróin og fallega 630 fm lóð. Framan við húsið er hellulögð stétt að húsi og gróin sameiginlegur garður. Gengið er upp á litla suður sérverönd og þaðan upp tröppur í eignina.  Á baklóð er 15 fm garðhýsi / geymsla sem fylgir eigninni. Sérmerkt stæði fylgir eigninni og samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu þá er réttur til að byggja bílskúr. 
Staðsetning: Smellið hér.

Eignin hefur verið talsvert endurnýjuð að innan sem utan undanfarin ár m.a: 
* Léttir veggir hafa verið teknir niður sem sem gera eignina bjartari og svefnherbergi hefur verið breytt í gott sjónvarpshol.
* Nýir skápar í hjónaherbergi og á gang á hæð.
* Nýir ofnar forstofu, geymslu, gestasalerni og eldhúsi. 
* Ný baðherbergisinnrétting og skápur á baðherbergi. 
* Nýr bakarofn og spanhelluborð í eldhúsi. 
* Nýtt parket á holi/gang, einu herbergi í risi og stiga. Nýtt parket fyrir neðri hæð getur fylgt með. Nýjar flísar á gestasalerni. 
* Innbyggt hátalarakerfi.
* Gluggar/gler endurnýjaðir að undanskildum tveimur gluggum.
* Ný útidyrahurð í bíslagi og báðar svalahurðir/gluggar eru nýjar.
* Rafmagn endurnýjað.
* Þak málað 2017.
* Rennur endurnýjaðar 2019.
* Drenað fyrir fimm árum og settur brunnur.
* Nýtt ruslatunnuskýli
Ný útihurð í þvottahúsi. 

Hér er um að ræða falleg og mikið endurnýjað fjölskylduhús. Þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús. Eign sem vert er að skoða. 

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

img
Hólmar Björn Sigþórsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Helgafell fasteignasala ehf.
Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
img

Hólmar Björn Sigþórsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. ágú. 2022
53.300.000 kr.
85.500.000 kr.
139.2 m²
614.224 kr.
25. maí. 2018
38.800.000 kr.
37.500.000 kr.
139.2 m²
269.397 kr.
22. nóv. 2016
29.900.000 kr.
35.750.000 kr.
139.2 m²
256.825 kr.
12. nóv. 2013
26.700.000 kr.
26.000.000 kr.
139.2 m²
186.782 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík

Hólmar Björn Sigþórsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík