Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Knútur Bjarnason
Rúnar Þór Árnason
Gunnar Sv. Friðriksson
Hólmar Björn Sigþórsson
Linda Björk Ingvadóttir
Kristján Þór Sveinsson
María Steinunn Jóhannesdóttir
Ragnheiður Árnadóttir
Vista
einbýlishús

Hjallabraut 6

815 Þorlákshöfn

78.500.000 kr.

491.239 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2212378

Fasteignamat

54.300.000 kr.

Brunabótamat

74.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1968
svg
159,8 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu Hjallabraut 6, 815 Þorlákshöfn:

Einstaklega vel staðsett 4 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum og með innbyggðum bílskúr. Birt stærð eignar er 159,8 fm þ.a er íbúðahluti 128,8 fm og bílskúr 31 fm. Vel staðsett eign í grónu hverfi í hjarta Þorlákshafnar með fallegum skjólgóðum garði með suður svölum og sólpalli. 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Skipulag eignar: Efri hæð: Forstofa, stofa / borðstofa, eldhús, svefnherbergisgangur, 3 svefnherbergi, baðherbergi. Neðri hæð: Stigagangur, þvottahús, geymsla og bílskúr. 

Nánari lýsing eignar: 
Efri hæð:

Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskáp.
Stofa / borðstofa: Stór og björt stofa, útgengi út á flísalagðar suður svalir, parketi á gólfi og við hurð út á svalir eru flísar að hluta. 
Eldhús: Með hvítri innréttingu, borðkrókur, nýr bakarofn og span helluborð, borðuppþvottavél sem fylgir með, flísar milli skápa, korkur á gólfi. 
Svefnherbergisgangur: Fataskápur, parket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með með góðum fataskápum, parket á gólfi
Svefnherbergi 2: Rúmgott svefnherbergi, veggskápur, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Rúmgott svefnherbergi, parket á gólfi.
Baðherbergi: Með svartri  innréttingu og speglaskáp með ljósi, baðker, flísalagt í hólf og gólf,

Neðri hæð: 
Stigagangur:
Úr eldhúsi er hurð niður á neðri hæð. Köld geymsla undir stiga.  Gönguhurð út á framhlið á neðri hæð. 
Þvottahús: Með hvítri innréttingu, vaskur, flísar á gólfi.
Geymsla: Inn af þvottahúsi, málað gólf.  
Bílskúr: Stærð 31 fm, vinnuborð, kalt vatn, bílskúrshurðaopnari, málað gólf. 

Húsið: Húsið er steinsteypt og byggt árið 1968. Innréttingar eru frá frá Fagus ehf. 
Lóð: Lóðin er 782,5 fm. Að framan er steypt innkeyrsla, stétt að húsi og steyptur stigi að aðalinngang. Á suðurhlið er sólpallur, hægt er að ganga niður´á sólpall úr stiga af svölum.  
Staðsetning: Smellið hér. 

Húsið hefur verið endurnýjað þó nokkuð m.a. :
* 2023 Þak málað 2023.
* 2020 Ný bílskúrshurð.
* 2020 Bílskúrsgólf flotað og málað. 
* 2020 Þvottahús flotað og flísalagt.
* 2020 Ný baðherbergisinnrétting. 
* 2020 Frárennslislagnir endurnýjaðar út í brunn. 
* 2014 - 2015 Gluggar og gler endurnýjaðir að undanskildum bílskúrsgluggum og útihurð inn í forstofu endurnýjuð. 

Hér er um að ræða einstaklega áhugaverða og vel staðsetta eign miðsvæðis í Þorlákshöfn, stutt í alla helstu þjónustu s.s. skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu og verslanir. 

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.

Þorlákshöfn:
Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi. 

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík