Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Freyja Sigurðardóttir
Ágústa Hauksdóttir
Andrea Guðrún Gunnlaugsdóttir
Glódís Helgadóttir
Hlynur Halldórsson
Valgerður Ása Gissurardóttir
Vista
parhús

Háaberg 15

221 Hafnarfjörður

154.900.000 kr.

543.509 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2075086

Fasteignamat

124.350.000 kr.

Brunabótamat

117.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1991
svg
285 m²
svg
7 herb.
svg
5 svefnh.
svg
Sérinngangur
Opið hús: 18. júní 2025 kl. 16:15 til 16:45

Opið hús: Háaberg 15, 221 Hafnarfjörður. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 18. júní 2025 milli kl. 16:15 og kl. 16:45.

Lýsing

Hraunhamar kynnir fallegt pallabyggt parhús á þessum eftirsótta stað í Setbergshverfinu í Hafnarfirði. Húsið er skráð 219,1 fermetrar skv. HMS en á neðri hæð er óskráð rými cirka 65 fermetrar.  Þannig að raunstærð hússins er cirka 285 fermetrar. ekki er full lofthæð í óskráða rýminu, hún er crika 2,2 metrar.  Húsið er vel staðsett innst í lokuðum botnlanga, stutt í leikskóla og skóla. Göngufæri í miðbæ Hafnarfjarðar.

✅Aukaíbúð með sérinngangi
✅Allt að fimm svefnherbergi
✅Frábær staðsetning
✅Vel viðhaldið hús 
✅Fallegur garður
✅Glæsilegt útsýni og aukin lofthæð 


Skipting eignarinnar:
Forstofa, sjónvarpshol, stofa, borðstofa, sólstofa, 4 svefnherbergi, gestasalerni, baðherbergi, þvottahús, bílskúr og geymslu.
Aukaíbúð með sérinngangi, alrými skiptist í stofu/eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymslu.

Lýsing eignarinnar:
Forstofa með fataskápum. Inn af forstofunni er eitt svefnherbergi með fataskápum. 
Þvottahús með innréttingu, innangengt í bílskúrinn frá þvottahúsinu. 
Gott sjónvarpshol með stórum glugga.
Flísalagt gestasalerni. 
Gengið upp á efsta pall þar er opið alrými með eldhúsi með eikar eldhúsinnréttingu og búri.
Stofa, borðstofa og sólstofa
með fallegu útsýni. Arin í stofunni. 
Á neðri hæðinni er þrjú svefnherbergi, fataskápur í öllum herbergjunum. Utangengt út í garðinn. Flísalagt baðherbergi með innréttingu, sturta og baðkar. 

Gólfefni, náttúruflísar og gegnheilt eikarparket.

Bílskúrinn rúmgóður, með heitu og köldu vatni, rafdrifin opnari, milliloft, hringstigi úr bílskúrnum á neðri hæð þar sem er geymsla. Einnig er innangengt í aukaíbúð sem er á neðri hæðinni. Þetta rými er óskráð, cirka 15 fermetrar. 

Aukaíbúðin er cirka 50 fermetrar og sérinngangur. Alrými skiptist í stofu/eldhús og svefnherbergi. Baðherbergi með innréttingu og sturtuaðstöðu, Þvottahús og geymsla. 

Lóðin er falleg með palli og skjólgirðingu, heitum potti, grasflöt og hellulögðu bílaplani. 

Þetta er fallegt og vel umgengið hús á þessum friðsæla stað í Setberginu. 

Nánari upplýsingar veitir Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is 


Nánari upplýsingar veitir Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is 

Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

img
Hlynur Halldórsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Hraunhamar fasteignasala
Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður
Hraunhamar fasteignasala

Hraunhamar fasteignasala

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður
img

Hlynur Halldórsson

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður
Hraunhamar fasteignasala

Hraunhamar fasteignasala

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður

Hlynur Halldórsson

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður