Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Benedikt Ólafsson
Sveinbjörn Rosén Guðlaugsson
Eggert Maríuson
Vista
svg

87

svg

57  Skoðendur

svg

Skráð  14. jún. 2025

fjölbýlishús

Helluvað 1-5

110 Reykjavík

74.700.000 kr.

822.687 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2280601

Fasteignamat

67.350.000 kr.

Brunabótamat

51.170.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2006
svg
90,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

STOFN fasteignasala og Benedikt Ólafsson lögg. fasteignasali kynna: Afar glæsilega, rúmgóða og vel skipulagða 90,8 fermetra 3ja herbergja búð á 4. hæð (efstu) með mjög stórum suðvestur svölum með stórbrotnu útsýni, ( þaksvölum þar sem möguleiki er á rafmagnspotti / heitum potti ) bílastæði í lokaðri bílageymslu í góðu góðu lyftuhúsi við Helluvað 1-5 í Reykjavík. Íbúðin öll hin snyrtilegasta og afar björt. Einstakt útsýni er til fjalla, yfir Hólmsá og að Elliðavatni til suðvesturs frá alrými og svölum. Einnig er fallegt útsýni frá svefnherbergjum að Esjunni, Úlfarsfelli og víðar. 

Íbúðin skiptist í rúmgott alrými sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengi er þaðan á stórar skjólgóðar svalir með stórbrotnu útsýni yfir Bláfjöll, Hólmsá, Heiðmörk og Elliðavatn. Tvö rúmgóð svefnherbergi. Rúmgott baðherbergi og sér þvottaherbergi innan íbúðar. Sérgeymsla í kjallara. Stæði í lokaðri bílageymslu, þvottastæði er í bílakjallara sem íbúð hefur aðgengi að. 

*Smelltu hér til að sjá myndband um eignina*

 
  • Vönduð og björt 3ja herb. íbúð á efstu hæð. Stæði í lokaðri bílgeymslu.
  • Stórbrotið útsýni af svölum yfir Bláfjöll, Heiðmörk og Elliðavatn
  • Stutt í útivistarperlur, Heiðmörk, Elliðavatn og Elliðaárdal
  • Barnvænt hverfi, stutt í grunn- og leikskóla.


"Smelltu hér til að fá söluyfirlit"

Frábært staðsetning þar sem stutt er í stofnæðar og í næsta nágrenni við frábær útivistarsvæði eins og Rauðavatn, Elliðavatn og Heiðmörk. Grunnskóli og leikskóli í göngufjarlægð ásamt matvörubúð. Sameiginlegt malbikuð stæði á lóðinni og er húsfélagið búið að setja upp tvær hleðslustöðvar (búið að leggja fyrir fjórum). Hellulögð stétt fyrir framan hús. Baklóð með leiktækjum.


Nánari lýsing:
Forstofa:
 Með flísum á gólfi og góðum skápum.
Gangur: Með harðparketi á gólfi.
Stofa / borðstofa: Með harðparketi á gólfi og stórum gluggum til suðvesturs. Stofa er opin við eldhús og rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengi á stórar svalir til suðvesturs.
Svalir: Mjög stórar svalir sem snúa til suðvesturs með miklu útsýni. Hellulagt svalagólf þar sem er gert ráð fyrir heitum potti. 
Eldhús: Er rúmgott með harðparketi á gólfi, snyrtilegri eldhúsinnréttingu með miklu skápaplássi. Bakaraofn í vinnuhæð, keramik helluborð. Eldhús er opið við stofu með stórum gluggum til suðvesturs.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott, með harðparketi, góðum skápum og glugga til norðurs með fallegu útsýni.
Svefnherbergi: Ágætis herbergi með harðparketi og glugga til norðurs með fallegu útsýni.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum og glerþili. Falleg innrétting við handlaug og skápum til hliðar. Upphengt salerni og útloftun.
Þvottaherbergi: Er endurnýjað og staðsett innan íbúðar. Flísar á gólfi, tengi fyrir þvottavél, innrétting (upphækun undir vél og skápar) og útloftun.

Geymsla: Sérgeymsla staðsett í kjallara. 9,8 fermetrar að stærð með máluðu gólfi og hillum.
Hjóla- og vagnageymsla: Er sameiginleg og er staðsett í kjallara. Útgengi á baklóð hússins.

Ert þú að fara selja, vantar þig trausta og metnaðarfulla fasteignasala með reynslu og þinn hag í fyrirrúmi?  Ef svo er þá er okkar heiðurinn að vera fasteignasali þinn eða þinna! Okkur vantar allar tegundir fasteigna á skrá vegna aukinnar sölu! 

" Heilindi - Dugnaður - Árangur er okkar leiðarljós".


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður. 
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Benedikt Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
STOFN Fasteignasala ehf.
Lyngási 11, 210 Garðabæ
STOFN Fasteignasala ehf.

STOFN Fasteignasala ehf.

Lyngási 11, 210 Garðabæ
img

Benedikt Ólafsson

Lyngási 11, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
17. sep. 2021
43.900.000 kr.
58.800.000 kr.
90.8 m²
647.577 kr.
10. maí. 2019
38.750.000 kr.
42.500.000 kr.
90.8 m²
468.062 kr.
12. feb. 2014
23.150.000 kr.
27.500.000 kr.
90.8 m²
302.863 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
STOFN Fasteignasala ehf.

STOFN Fasteignasala ehf.

Lyngási 11, 210 Garðabæ

Benedikt Ólafsson

Lyngási 11, 210 Garðabæ