Opið hús: Bergstaðastræti 48, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 04 01. Eignin verður sýnd sunnudaginn 22. júní 2025 milli kl. 13:30 og kl. 14:00.
Lýsing
Nánari lýsing:
Parketlagt hol miðsvæðis
Herbergi 1, stórt hjónaherbergi með parketi á gólfi og góðum fataskápum
Herbergi 2, Rúmgott barnaherbergi með parketlögðu gólfi og fataskápum.
Stofan rúmgóð og björt með útgengi út á stórar og skjólgóðar suðursvalir
Eldhús samliggjandi við stofu með fallegri nýlegri innréttingu, stór eyja með gaseldavél, stór gluggi með einstöku útsýni.
Baðherbergið mjög fallegt, allt endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf, stór sturtuklefi með gler sturtuskjóli, upphengt salerni, skápur undir vaski og stór speglaskápur á vegg.
Þvottahús er innan íbúðar bæði með tengi fyrir þvottavél, og þurrkara.
Á jarðhæðinni er sér geymsla 3,6 m².
Hjóla og vagnageymsla er á jarðhæðinni
Endurbætur:
2016 Baðherbergi endurnýjað
2016 Elhús endurnýjað
2016 Hiti settur í gólf og nýtt parket
2016 Ný rennihurð/gluggar á svölum
2023 Suðurhlið steypuviðgerð
2021 Frárennslislagnir myndaðar
2018 Þak lagað, skipt upp pappa og þakjárn
2025 Rennur hreinsaðar
Þetta er sérlega vel skipulögð og falleg eign á frábærum og rólegum stað og með útsýni eins og best gerist..
Nánari upplýsingar veitir Sigþór Bragason, löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali, í síma 899 9787, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti á sb@gimli.is
Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli gerir betur...
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...