Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
svg

113

svg

95  Skoðendur

svg

Skráð  16. jún. 2025

fjölbýlishús

Vetrarbraut 2-4 íb113

210 Garðabær

122.520.000 kr.

996.098 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2534855

Fasteignamat

2.334.750.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
123 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 22. júní 2025 kl. 14:00 til 15:00

-- VERIÐ HJARTANLEGA VELKOMIN Á OPIÐ HÚS Í VETRARBRAUT 2-4 SUNNUDAGINN 22. JÚNÍ milli KL. 14.00 - 15.00 -- viltu frekar bóka einkaskoðun? hafðu samband við Fasteignasöluna TORG - torg@fstorg.is

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir: Góð 4ra herbergja íbúð með svalir og sérafnotareit, um 16,2fm inn í sameiginlegan garð. Íbúð merkt:0113, sem skilast fullbúin án gólfefna. Íbúðin er alls 123,0fm að stærð á 1. hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin sjálf er skráð 106,2fm og skiptist í anddyri, gestasalerni, alrými með eldhúsi og stofu með útgengi út á verönd, um 16,2fm. sem snýr inn í sameiginlegan garð, 3 svefnherbergi, og svalir út af gangi, sér þvottahúsi og bílskúr í bílakjallara merkt: 0061, skráður 16,8fm. ásamt einu bílstæði í bílakjallara merkt: B11.   Allar nánari upplýsingar, teikningar, og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Helgi Jónsson, fasteignasali í GSM: 780-2700 eða helgi@fstorg.is 

Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉR
Sækja söluyfirlit HÉR

Vetrarbrautin er hluti af nýju hverfi við jaðar friðlandsins í Heiðmörk.
Húsin eru í randbyggðarformi með fallegum inngarði. Íbúðir á jarðhæð hafa sérafnotareiti en íbúðir á efri hæðum eru með svalir. Einstök staðsetning við golfvöll GKG við Vífilstaði þar sem hægt er að bruna á golfbílnum beint úr frístundaskúrnum út á völl. Fallegar eignir þar sem áhersla er lögð á loftgæði og hefur hver íbúð sitt eigið loftskiptakerfi.
Við hönnun innanhúss var horft til þess að halda innréttingum þannig að þær séu klassískar og tímalausar en jafnframt nútímalegar. Vandað var við val á eldhús- og blöndunartækjum.
Næg bílastæði eru í bílakjallara og hverri íbúð fylgja 1 til 3 einkastæði. Þá fylgir hluta íbúðanna frístundaskúr eða bílskúr í bílakjallara.
Tvö fjögurra hæða staðsteypt fjölbýlishús með inngarð. Samtals 72 íbúðir í 6 stigagöngum Tveggja hæða niðurgrafinn bílakjallari með geymslum, bílskúrum.  Samtals 115 bílastæði á lóð og í bílakjallara. Húsin eru í svansvottunarferli.

Utanhússfrágangur
Klæðning: Flísar og álklæðning (báru og slétt), náttúrulegir jarðlitir.
Þak: Þakplötur eru steinsteyptar og vatnshalli formaður í steypu. Viðsnúið með gróðurþekju, þykk einangrun og drenlag.
Gluggar og hurðir: Ál/tré gluggar og hurðir, hvítir að innan og koxgráir að utan.
Lóð: Fullfrágengin skv. landslagsuppdráttum, snjóbræðsla á gönguleiðum, rafhleðslurör í jörð, 2 hleðslustöðvar á lóð.

Innanhússfrágangur 
Gólfefni: Baðherbergi og þvottahús flísalögð, annars afhent án gólfefna.
Loft: Spörtluð og máluð; dúkloft í sumum þvottahúsum.
Veggir: Léttir innveggir með steinull, rakavörn í votrýmum, allir veggir sandspartlaðir og málaðir.
Hurðir: Yfirfelldar, hvítar hurðir frá Parka.
Innréttingar: Frá VOKE-III, plastlagðar með kvarssteins borðplötum, svört handföng. Flísar: 60x60 
Hitakerfi: Hefðbundið ofnakerfi, gólfhiti og handklæðaofnar á baðherbergjum.
Loftskipti: Sér samstæða fyrir hverja íbúð.
Raflagnir: Ljósleiðari, myndavéladyrasími, hvítir rofar og tenglar.

Tæki og búnaður
Eldhústæki (flest frá Siemens): Helluborð, ofn, ísskápur, uppþvottavél.
Háfar: Falmec Sophie hangandi eða Bosch innbyggðir.

Sameignir: Stigagangar: Málaðir veggir, teppalögð gólf, flísar í anddyri, burstuð stállyfta.
Geymslur: Slípaðir og málaðir veggir/gólf með slitþolinni málningu.
Hjólageymsla: Í hvoru húsi.
Djúpgámar: 6 talsins, rusl flokkað skv. reglum Garðabæjar.

Hönnun og framkvæmdir
Arkitektar: Arkís arkitektar.
Verkfræðihönnun: Þráinn & Benedikt, LX teiknistofa.
Framkvæmdaraðili: Framkvæmdarfélagið Arnarhvoll.
Sjá nánar skilalýsingu verkefnisins*
Áætluð afhending er haust 2025

img
Sigurður Gunnlaugsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Sigurður Gunnlaugsson

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Sigurður Gunnlaugsson

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ