Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Freyja Sigurðardóttir
Ágústa Hauksdóttir
Andrea Guðrún Gunnlaugsdóttir
Glódís Helgadóttir
Hlynur Halldórsson
Valgerður Ása Gissurardóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1942
svg
240,1 m²
svg
8 herb.
svg
3 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Hraunhamar fasteignasala og Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is kynna: Glæsilegt og virðulegt 6-7 herbergja einbýli á besta stað í Hafnarfirði, í göngufæri við miðbæinn.
Húsið er samtals 241 fm, þar af sérstæður bílskúr 27 fm. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á sl. árum. Mikil verðursæld.  Suðurgarður með pöllum/verönd. Tvö baðherbergi auk gestasnyrting.

Húsið er steypt með steyptum loftaplötum, risið er úr timbri síðan 2003. Húsið var allt einangrað að utan og klætt bárujárni 2003 sem allir gluggar/gler nýir úr plasti.
Þá voru lagnir líka endurnýjaðar. Steyptir stigar eru í húsinu. 

Húsið lítur virkilega vel út að utan sem innan.  Sjón er sögu ríkari ! 


Húsið skiptist m.a.þannig: Miðhæð/Aðalhæð: forstofa með skáp, á hægri hönd er glæsilegt rúmgott eldhús með nýlegum vönduðum innréttingum og tækjum, setkrókur/borðkrókur/vinnuaðstaða. Tvær fallegar samliggjandi stofur, glæsileg gestasnyrting með glugga.
Rishæð: Fallegur stigi á milli hæða, gangur/hol, tvö góð herbergi, og gott hjónaherbergi með fataherbergi fyrir innan, glæsilegt baðherbergi með baðkari. 
Kjallari: Innangengt úr forstofu, tvö stór barnaherbergi,rúmgott þvottaherbergi/geymsla, stofa/herbergi/alrými, og baðherbergi með sturtuaðstöðu. Sérinngangur er í kjallara líka.
Bílskúr: Hann er snyrtilegur og fullbúinn.

Samkvæmt upplýsingum seljenda þá er eignin mikið endurnýjuð á sl. árum m.a.
2022
Baðherbergi endurnýjað í kjallara.
2023 Skipt um gólfefni/teppi, parketlögð stofa/alrými í kjallara og stærra herbergi málað. 
Eldhús endurnýjað þ.e. innréttingar og tæki, nýtt viðarparket á miðhæðina frá Parka.
2024 Innréttingar í þvottaherbergi endurnýjaðar. Baklóð í suður endurnýjuð með gróðri og hellulögn.
2023 Bílskúr er snyrtilegur og fullbúinn. Bílskúrshurðaopnari.
2003 Þá var eignin mikið endurnýjuð,m.a. hitaveitulagnir,raflagnir og skólplagnir innan eignar. Rishæðin var byggð og því er þakið síðan þá. Bílskúr byggður sem og forstofa og stigahol byggt við húsið. 

Þetta er stór og virðuleg húseign á besta stað, sem vert er að skoða frekar !

Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustjóri s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og 
Hlynur Halldórsson lgf. s, 698-2503 hlynur@hraunhamar.is





Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

img
Hlynur Halldórsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Hraunhamar fasteignasala
Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður
Hraunhamar fasteignasala

Hraunhamar fasteignasala

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður
img

Hlynur Halldórsson

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. maí. 2021
85.850.000 kr.
100.000.000 kr.
240.1 m²
416.493 kr.
30. jan. 2015
41.650.000 kr.
57.000.000 kr.
240.1 m²
237.401 kr.
30. nóv. 2010
36.850.000 kr.
44.500.000 kr.
240.1 m²
185.339 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Hraunhamar fasteignasala

Hraunhamar fasteignasala

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður

Hlynur Halldórsson

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður