Lýsing
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi, fataskápur.
Gangur/hol með harðparketi á gólfum, útgengt út á stóran sólpall með skjólveggjum.
Svefnherbergisálma með harðparketi á gólfi, við enda gangsins er lítið útskot fyrir vinnu/tölvuaðstöðu.
Þrjú svefnherbergi, hjónaherbergi rúmgott með stórum fataskáp, harðparket á gólfi.
Annað svefnherbergi með harðparketi og minni fataskáp.
Þriðja herbergið er tvískipt herbergi (var áður 2 herbergi en sameinað í eitt) harðparket á gólfi.
Baðherbergi endurnýjað 2019. Flísar á gólfi, sturtuklefi, baðkar, upphengt salerni og hvít innrétting.
Nokkur þrep upp á efsta pall, þar sem er stór opin stofa og borðstofa, kamína, harðparket á gólfi. Frábært útsýni.
Rúmgott eldhús er opið að stofunni, hvít innrétting með góðu skápaplássi, spanhelluborð, uppþvottavél, ofn og combi ofn, flísar á gólfi.
Inn af eldhúsi er lítið skrifstofuherbergi með hvítri innréttingu og búr með hillum inn af því. Eldhús og skrifstofa endurnýjað 2017.
Á neðsta palli fyrir neðan stofu er góð setustofa, rúmgott svefnherbergi og geymsla.
Sér inngangur að aftanverðu, forstofa með fataskáp.
Stórt þvottahús með innréttingu og salerni.
Sérstæður bílskúr er 52 m² að stærð, inngönguhurð og eldri bílskúrshurð úr timbri með fjarstýrðum opnara.
Steypt gólf, vinnubekkur og hillur. Góð geymsla innst í bílskúr.
Aðkeyrsla og bílastæði hellulagt að hluta og malarborið að hluta.
Stór fallegur afgirtur garður.
Húsið er kynt með rafmagnsofnum.
Þak endurnýjað um 2003.
Gler hefur verið endurnýjað einu sinni allt áður og svo hluti þess endurnýjað 2019.
Vatnslagnir endurnýjaðar.
Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.