Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: 285,2 m2 iðnaðarhúsnæði við Koparsléttu 14 í Reykjavík. Birt stærð eignarinnar er 285,2 m2, 196 m2 salur og 89,2 m2 milliloft.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Húsið er stálgrindarhús á steyptri botnplötu og sökklum. Milliloft er gert úr stáli og steinsteypu. Tvær gönguhurðir eru á eigninni og ein ca. 4,2 m innkeyrsluhurð. Eignin skiptist í opið 196 m2 vinnurými með mikilli lofthæð yfir hluta salarinns, og 89,2 m milliloft sem er opið rými. Salernisaðstaða er í vinnurými á neðri hæð.
Eignin er skráð á byggingarstigi B1 og matsstigi 8.
Verð kr. 109.500.000 kr.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.