Opið hús: Ástu-Sólliljugata 2, 270 Mosfellsbær, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 23. júní 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Rúmgóð og vel skipulögð 5 herbergja íbúð á 2. hæð í fjórbýlishúsi ásamt bílskúr á við Ástu-Sólliljugötu 2 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 169,8 m2, þar af íbúð 140,7 m2 og bílskúr 29,1 m2. Íbúðin skiptist í fjögur svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, gestasnyrtingu, eldhús, borðstofu og stofu. Eigninni fylgir bílskúr á jarðhæð.
Frábær staðsetning rétt við grunn- og leiksskóla, Helgafellsskóla og fallegar gönguleiðir. Stutt í strætóstoppistöð. Rúmgóðar svalir með fallegu útsýni. Eigninni fylgja tvö bílastæði og eru til staðar ídráttarrör fyrirhuguð fyrir raflagnir að bílahleðslustöð. Bílaplanið er hellulagt með snjóbræðslukerfi. Aukin lofthæð er í íbúðinni. Sprunguviðgerðir og heilmálun hússins eru í vinnslu. Verklok eru áætluð í júní–júlí og seljandi greiðir fyrir framkvæmdina.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi og fataskáp.
Gestasnyrting er inn af forsofu með flísum á gólfi, vegghengdu salernig og lítilli innréttingu.
Stofa og borðstofa er í opnu rými með eldhúsi. Parket á gólfi. Úr stofu er gengið út á stórar svalir í suðurátt með fallegu útsýni.
Eldhús er með fallegri innréttingu og eyju. Í innréttingu er helluborð, ofn, vifta og vaskur. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Baðherbergið er flísalagt, innréttingin samanstendur af handlaug, skúffum og einfaldri skápaeiningu, walk-in sturtu, skápum og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónherbergið) er rúmgott með parket á gólfi með góðum fataskápum.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi nr. 4 er með parketi á gólfi og litlum fataskáp.
Bílskúrinn er með aukinni lofthæð, góðu millilofti og epoxý máluðu gólfi. Er skráður 29,1 m2.
Verð kr. 114.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.