Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
svg

92

svg

72  Skoðendur

svg

Skráð  19. jún. 2025

fjölbýlishús

Vesturberg 74

111 Reykjavík

56.900.000 kr.

695.599 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2050732

Fasteignamat

48.400.000 kr.

Brunabótamat

40.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1970
svg
81,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 24. júní 2025 kl. 17:00 til 17:30

Matthildur Sunna Þorláksdóttir lgfs s. 690 4966 verður á staðnum og sýnir

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir: Björt og rúmgóð, 3ja herbergja, 81,8 fm íbúð á fjórðu hæð og efstu hæð, með glæsilegu útsýni til austurs og vesturs. Íbúðin skiptist í anddyrisgang, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi og þvottahús inn af eldhúsi. Afhending getur verið fljótlega. Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða matthildur@fstorg.is - SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR
 
Nánari lýsing: 
Gengið er inn í flísalagt anddyri. Úr anddyri er gangur sem tengir rými íbúðar.
Stofa er björt og með útgengi á rúmgóðar vestursvalir með glæsilegu útsýni.
Eldhús er með hvítum og viðarlituðum innréttingum og efri skápum. Fallegt útsýni til austurs úr eldhúsi. Gengið er inn í þvottahús frá eldhúsi.
Tvö svefnherbergi, hjónaherbergið er með rúmgóðum fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt með skemmtilega retro flísum, hvítri innréttingu með viðarlitaðri borðplötu undir vask og baðkari með sturtu. Gólfefni íbúðar eru parket, nema á eldhúsi, þvottahúsi og anddyri, þar eru flísar og baðherbergi er með dúk.
4,5 fm sér geymsla er í sameign sem og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Þvottahús er í sameign sem notað er sem þurrkherbergi í dag. 
Hluti af innbúi getur fylgt. 

Að sögn seljenda hefur eftirfarandi verið gert:
- Vesturhlið hússins var máluð og farið í viðhald á gluggum árið 2015
- Skipt um glugga og gler á austurhlið hússins árið 2018
- Þak yfirfarið 2018 og var lagfært eftir þörfum.

Næg bílastæði eru við húsið og rafhleðslutengingar fyrir bíla eru komnar upp á bílaplani.
 Öll helsta þjónusta er í göngufæri, skólar, leikskóli, matvöruverslun, heilsugæsla, sundlaug, íþróttastarfsemi ofl.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
 
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.
 

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone