Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Vista
raðhús

Furuhlíð 7

221 Hafnarfjörður

139.000.000 kr.

788.876 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2074884

Fasteignamat

120.200.000 kr.

Brunabótamat

111.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1993
svg
176,2 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 24. júní 2025 kl. 18:00 til 18:30

Opið hús: Furuhlíð 7, 221 Hafnarfjörður. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 24. júní 2025 milli kl. 18:00 og kl. 18:30.

Lýsing

LIND fasteignasala kynnir fallegt og vel skipulagt endaraðhús með bílskúr við Furuhlíð 7 í Hafnarfirði. Húsið er teiknað af Vífli Magnússyni. Tvö stór svefnherbergi, stór stofa með mikilli lofthæð, borðstofa, eldhús og sér þvottahús. Tvö baðherbergi. Í stofunni er fallegur arinn hannaður af Vífli sem setur svip sinn á stofuna og gefur húsinu tignarlegt yfirbragð. Flísar og gegnheilt parket á gólfum. Útgengt úr borðstofu í fallegan, gróinn garð með skjólgóðum palli. Falleg og vönduð eign í rólegu og fjölskylduvænu hverfi þaðan sem stutt er í fallegar gönguleiðir og alla helstu þjónustu. 
Áætlað fasteignamat 2026: 134.100.000 kr.

Neðri hæð:
Forstofa: Flísar á gólfi og stór fataskápur.
Baðherbergi inn af forstofu: Flísar á gólfi og veggjum, sturtuklefi, handlaug, salerni og geymsluskápur.
Stofa: Parket á gólfi, mikil lofthæð með innfelldri lýsingu, fallegur arinn og flísalagt framan við eldstæðið.
Borðstofa: Flísar á gólfi og útgengt á verönd og garð. Hiti í gólfi.
Eldhús: Flísar á gólfi, hiti í gólfi bæði á eldhúsi og borðstofu, hvít innrétting með góðu geymsluplássi. Rafmagns- og gashelluborð, tengi fyrir uppþvottavél og pláss fyrir tvöfaldan ísskáp.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og stór fataskápur. Herbergið er stórt og er möguleiki að skipta því upp í tvö herbergi.
Þvottahús: Flísar á gólfi, innrétting og vélar í vinnuhæð.

Efri hæð:
Hol/Stigapallur: Parket á stiga og stigapalli.
Hjónaherbergi: Flísar á gólfi, stór fataskápur, útgengi á kvöldsvalir.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, baðkar, salerni, tvær handlaugar. Opnanlegur gluggi.

Bílskúr: Flísar á gólfi, rafmagnshurðaopnari og óskráð geymsluloft. Vaskur með heitu og köldu vatni. Innangengt í gegnum þvottahús.

Garður er gróinn og fallegur. Stórt hellulagt bílaplan með snjóbræðslu.
Vífill Magnússon teiknaði húsið.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%  
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. 
 

Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. sep. 2015
43.700.000 kr.
48.000.000 kr.
176.2 m²
272.418 kr.
13. sep. 2007
39.230.000 kr.
51.900.000 kr.
176.2 m²
294.552 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone