Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Samúelsson
Andri Sigurðsson
Sveinn Eyland
Ingibjörg Agnes Jónsdóttir
Guðrún Diljá Lúðvíksdóttir
Monika Hjálmtýsdóttir
Júlíus Jóhannsson
Freyja Rúnarsdóttir
Jón Óskar Karlsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1984
svg
259,6 m²
svg
10 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

LANDMARK fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali – 823-2800 / monika@landmark.is kynna:

KRINGLAN 93 – FALLEGT OG VEL STAÐSETT ENDARAÐHÚS MEÐ AUKAÍBÚÐ, BÍLSKÚR OG AFGIRTUM GARÐI

Fallegt og einstaklega vel staðsett 259,6 fm endaraðhús við Kringluna 93 í Reykjavík. Húsið skiptist í aðalíbúð á tveimur hæðum, aukaíbúð í kjallara með sér inngangi og bílskúr við götu með rafbílatengli. Eignin hefur verið reglulega við haldið og endurbætt, m.a. var baðherbergi endurnýjað 2018, nýtt gler sett í flesta glugga og aukaíbúðin innréttuð 2020. Lóðin er snyrtileg, afgirt og með fallegum hellulögðum garði í vestur.

✅ 259,6 fm endaraðhús á þremur hæðum með bílskúr
✅ Aðalíbúð á tveimur hæðum og aukaíbúð í kjallara með sér inngangi
✅ Stórar svalir til austurs og aðrar til vesturs
✅ Útgengi úr stofu í afgirtan garð
✅ Frábær staðsetning beint á móti Kringlunni

Birt stærðir samkvæmt Þjóðskrá Íslands:
Aðalíbúð: 158,9 fm
Aukaíbúð: 77,6 fm
Bílskúr: 23,1 fm
Samtals: 259,6 fm

Aðalíbúð – nánari lýsing
Neðri hæð:
Forstofa: Rúmgóð með flísum og fataskáp.
Þvottahús: Inn af forstofu, með tengi fyrir vélar í vinnuhæð, flísalagt gólf, útgengt.
Hol: Parketlagt og tengir aðalrými við stiga.
Eldhús: Upprunaleg innrétting með bakaraofni í vinnuhæð, helluborði, háf og tengi fyrir uppþvottavél og tvöfaldan ísskáp.
Borðstofa: Rúmgóð, framan við eldhús, parket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð með útgengi um rennihurð í afgirtan hellulögðan garð í vestur.
Útigeymsla: Upphituð rúmgóð geymsla með áföstum hillum og litlum glugga. Önnur lítil köld geymsla við hliðiná. 

Efri hæð:
Hol: Mjög bjart með þakgluggum og mikilli lofthæð. Teppalagður gangur með tveimur stórum fataskápum.
Svefnherbergi (3): Öll rúmgóð með fataskápum og teppi. Hjónaherbergi með útgengi á stórar austursvalir, annað herbergi með útgengi á vestursvalir.
Baðherbergi: Rúmgott og flísalagt í hólf og gólf. Walk-in sturta með innbyggðum tækjum, hornbaðkar, upphengt salerni, hvít innrétting, speglaskápur og handklæðaofn.
Stigi: Teppalagður.

Aukaíbúð í kjallara – innréttuð 2020
Forstofa: Flísalögð.
Stofa: Inn af forstofu, björt og opin.
Svefnherbergi: Rúmgott með rennihurð.
Eldhús og borðkrókur: Hvít háglans innrétting með litlu helluborði, innbyggðum bakaraofni/örbylgjuofni, uppþvottavél og tengi fyrir þvottavél. Djúpur fataskápur við borðkrók.
Baðherbergi: Tvískipt; annars vegar walk-in sturta með innbyggðum tækjum og hins vegar upphengt salerni og baðinnrétting.
Geymsla: Inn af baði, lagnir fyrir gufu.
Gólf: Flísalögð og með gólfhita og stýringu í hverju herbergi.

Utan- og sameign:
Bílskúr: 23,1 fm með rafdrifnum hurðaopnara, rafbílatengi, krani og kalt vatn.
Lóð: Sér afgirt með hliði, hvít girðing, hellulögn, möl og gróður.
Leiksvæði: Fallega hirt sameiginleg lóð með leiksvæði fyrir miðju.
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði fyrir framan bílskúr og sameiginleg stæði við húsið.

Endurbætur og viðhald:

2024: Tengd ný kaldavatnslögn í eldhúsið
2024: Tvö hraðhleðslustæði í sameign/bílastæði sett upp af lóðafélaginu
2024: Hitaþráður settur í þakrennu
2021–2022: Nýtt gler og málun á gluggum
2019–2021: Endurbætur á kjallara, gólfhiti og flísar
2018: Baðherbergi endurnýjað, gólfhiti og nýjar hurðir á efstu hæð
2017: Endurnýjuð girðing, gróður og útiljós
2015: Múrviðgerðir og málun að utan
2014: Garður tekin í gegn, hitalagnir undir hellur
2008: Endurbætur á þaki, pappa og þakjárni skipt út

Staðsetning:
Kringlan 93 er í grónu og eftirsóttu hverfi miðsvæðis í borginni. Gatan liggur beint á móti verslunarmiðstöðinni Kringlunni og í göngufæri eru skólar, leikskólar, heilsugæsla, Verzlunarskóli Íslands og íþróttasvæði Víkings í Safamýri. Stutt er í helstu samgöngur og þjónustu.

Sækja HÉR söluyfirlit samstundis

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali – 823-2600 / julius@landmark.is
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@landmark.is
Láttu okkur sjá um söluna fyrir þig – við veitum þér faglega söluráðgjöf

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

img
Júlíus Jóhannsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
LANDMARK fasteignamiðlun
Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
LANDMARK fasteignamiðlun

LANDMARK fasteignamiðlun

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
phone
img

Júlíus Jóhannsson

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. nóv. 2012
50.200.000 kr.
55.500.000 kr.
259.6 m²
213.790 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
LANDMARK fasteignamiðlun

LANDMARK fasteignamiðlun

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
phone

Júlíus Jóhannsson

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur