Opið hús að Sóltúni 14 íbúð 301, 105 Reykjavík þriðjudaginn 24. júní 2025 á milli kl. 16:30 og kl. 17:00. Verið velkomin.
Lýsing
Mjög falleg og vel um gengin 3ja herbergja 106,8 fm endaíbúð á 3. hæð, við Sóltún í Reykjavík. Lyfta er í húsinu og er íbúðin björt með rúmgóðum suðvestur svölum með glerlokunum sem hægt er að opna að fullu. Stórt stæði í bílageymslu fylgir við inngang í stigahús. 2 rúmgóð svefnherbergi og þvottahús innan íbúðar. Virkilega falleg og björt eign, frábærlega staðsett. Stutt í alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veita:
Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 770-0309 eða th@landmark.is
Freyja Rúnarsdóttir lögg. fast. s. 694-4112 eða freyja@landmark.is
Nánari lýsing:
Komið er inn í parketlagða forstofu og hol með tveimur skápum. Til vinstri frá forstofu er flísalagt þvottahús, með vaski og hillum. Næst til vinstri er rúmgott og flísalagt baðherbergi með innréttingu, sturtu og handklæðaofni. Til hægri frá holi er hjónaherbergi með góðum skápum. Parket á hjónaherbergi. Frá holi er komið inn í stóra og bjarta stofu og borðstofu. Frá stofu er gengið út á rúmgóðar suðvestur svalir með glerlokunum sem er hægt að opna að fullu. Stofa er parketlögð og glæsilegt útsýni er frá henni. Inn af stofu er rúmgott og parketlagt svefnherbergi. Til hægri frá borðstofu er fallegt eldhús með eikarinnréttingu og tengi fyrir uppþvottavél. Eldhús er parketlagt. Gólfhiti er í íbúð og fallegar eikar innréttingar.
Í sameign er sérgeymsla. Auk þess fylgir íbúðinni rúmgott stæði í bílageymslu sem er staðsett á besta stað, rétt við innganginn í lyftuhús.
FALLEG ENDAÍBÚÐ Á 3. HÆÐ Í VÖNDUÐU LYFTUHÚSI, ÁSAMT STÆÐI Í BÍLSKÝLI, MIÐSVÆÐIS Í REYKJAVÍK.
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat