Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýtt og glæsilegt 168,8 m2 heilsárshús/sumarhús við Seljadalsveg 8, í útjaðri byggðar rétt við Hafravatn, 271 Mosfellsbæ. Frábær staðsening, ca 10-15 mín akstur frá höfðuborgarsvæðinu.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu, stofu, baðherbergi, geymslu/þvottahús tvö svefnherbergi og skrifstofu (hægt að nýta sem herbergi). Stórir gólfsíðir gluggar þar í allar áttir þar sem útsýnið fær að njóta sín. Mikil lofthæð með innbyggðri lýsingu og hljóðdúk í alrými.
Húsið stendur á 7267,3 m2 eignarlóð og skilast í september 2025 tilbúin til innréttinga skv. skilalýsingu seljanda en auk þess eignin fullmáluð að innan, rafmagn fullfrágengið með free@home hússtjórnarkerfi og fullfrágengið loftskiptikerfi frá Nibe.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Verð kr. 149.900.000, - Nánari upplýsingar veitir Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali í síma 698-8555 eða svanthor@fastmos.is, Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali í síma 690-8040 eða teddi@fastmos.is eða Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Skilalýsing er eftirfarandi:
Utanhúss: Frístundarhús á einni hæð byggt úr timbri.
Útveggir eru klæddir með álklæðningu að utanverðu í bland við timburklæðningar.
Þak er hefbundið sperruþak með á soðnum þakpappa. Þakrennur, niðurföll og þakkantur frágengin.
Gluggar: Ál/tré gluggar með tvöföldu K-gleri, ál/tré inngangshurðar og svalahurðir úr áli.
Lóð er skilað með pöllum undir þakskyggnum, mulning í bílastæðum og slétt í kringum eftir uppgröft. Að öðru leyti óbreytt.
Innanhúss: Eignin skilast tilbúin til innréttinga samkvæmt byggingarstigi B3 (byggingarstigi 5 miðað við gamla staðalinn, ÍST 51:2001)
Loft: Hljóðdúkur í loftum í stofu, herbergjum og anddyri. Gipsloft á böðum og þvottahúsum: Sparslað, grunnað og málað.
Gólf eru steypt og grófslípuð.
Innveggir: Uppsettir samkvæmt teikningu, léttir innveggir klæddir með spónaplötum innra lag og gifsplötum ytra lag, sparstlaðir,grunnaðir og málaðir.
Rafmagn: Inntak og rafmagnstafla uppsett og tengd. Rafmagn dregið í, tenglar, rofar og innfelld ljós frágenginn.
Pípulagnir: Eigin borhola fylgir eigninni með dælu og er hún tengd og fullfrágengin. Gólfhitakerfi tengt og frágengið. Neysluvatn lagt í gólf og veggi samkvæmt teikningum. Hita-, rafmagns og vatnslagnir eru lagðir í gólfplötu og innveggi. Varmadæla teng og fullfrágengi til kyndingar á neysluvatni og gólfhitakerfi. Ídráttarrör klár fyrir heitanpott. Húsið er hitað upp með gólfhitakerfi. Pípur fyrir raf- og boðlagnir eru miðaðar við samþykktar skipulagsteikningar. Heimtaugar rafmagns skulu tengdar og frágengnar. Frágangur neyslu og fráveitulagna er miðaður við samþykktar skipulagsteikningar.
Annað:. Kaupandi skal fá nýja byggingastjóra og meistara að verkinu við afhendingu og sér um úttektir eftir afhendingu eignar. Allar byggingarteikningar afhendast samþykktar frá skipulagsnefnd Mosfellsbæjar til kaupanda. Kaupandi greiðir fyrir allar breytingar á teikningum sem hann kann að óska eftir. Minniháttar breytingar hafa verið gerðar frá upprunalegum teikningum og mun seljandi skila inn reyndarteikningum fyrir þeim breytingum. ATH. myndir að innan af Seljadalsvegi 8 sem er sambærilegt hús.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.