Upplýsingar
Byggt 2016
104,1 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Útsýni
Sérinngangur
Lýsing
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Jaðarstún 6 - 202
Virkilega vel skipulögð og björt fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð í fjögurra íbúða nýlegu húsi á vinsælum stað í Naustahverfi. Eignin er samtals 104,1 fm. auk þess eru góðar svalir sem snúa til vesturs.
Eignin skiptist í forstofu, þvottahús og geymslu, stofu og eldhús í opnu rými, baðherbergi og þrjú svefnherbergi.
Forstofa með flísar á gólfi og opnu fatahengi.
Stofa og eldhús er í opnu og björtu rými þaðan sem er mjög gott útsýni. Parket á gólfum og hvít mjög rúmgóð innrétting í eldhúsi þar sem er stæði fyrir uppþvottavél, ísskáp og bakaraofn í vinnuhæð. Úr eldhúsi er útgengt á svalir sem snúa til vesturs og eru flísalagðar.
Svefnherbergi eru þrjú, öll með parket á gólfum og fataskápar í hjónaherbergi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum, innrétting í kringum vask, sturta, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús og geymsla er inn af forstofu, þar eru flísar á gólfi, stæði fyrir þvottavél og þurrkara ásamt vask í innréttingu og opnalegt fag.
Annað:
-Sameiginleg geymsla í lagnarými er undir stigapalli.
-Flísar á svölum.
-Hvítar innréttingar.
-Hvítar innihurðir.
-Ljósleiðari
-Gólfhiti
-Samkv. eignaskiptasamningi fylgja tvö stæði íbúðinni á sameiginlegum bílstæðum fyrir framan húsið.
-Vinsæl staðsetning, rétt við golfvöllinn að Jaðri, matvöruverslun og stutt í leik- og grunnskóla.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955