Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Styrmir Bjartur Karlsson
Vista
svg

2440

svg

1900  Skoðendur

svg

Skráð  21. jún. 2025

fjölbýlishús

Lindargata 35

101 Reykjavík

97.000.000 kr.

1.160.287 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2297895

Fasteignamat

81.000.000 kr.

Brunabótamat

55.630.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2008
svg
83,6 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 26. júní 2025 kl. 16:00 til 17:00

Opið hús: Lindargata 35, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 12 03 03. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 26. júní 2025 milli kl. 16:00 og kl. 17:00.

Lýsing

CROISETTE - KNIGHT FRANK kynnir í einkasölu glæsilega, vandaða og mikið endurnýjaða 2ja herbergja 83,6 fermetra íbúð á 3. og efstu hæð með suðursvölum í nýlegu fjölbýlishúsi í Skuggahverfinu í Reykjavík auk sér bílastæðis í lokaðri og upphitaðri bílageymslu í kjallara hússins og með sérgeymslu í kjallara. Íbúðin var öll innréttuð upp á nýtt árið 2023, lagt var gegnheilt eikarparket á íbúðina í fiskibeinamynstri. Sérsmíðaðar vandaðar innréttingar í eldhúsi og baðherbergi eru úr reyktri eik og eru frá Hegg.  Sérhönnuð lýsing ásamt því að rafmagn var allt yfirfarið og settir nýir tenglar.
Einungis 9 íbúðir eru í þessu húsi og stutt er í alla þjónustu, verslanir, veitingahús og mannlíf miðborgarinnar. Húsið er einangrað að utan og klætt með flísum og er í góðu ástandi. 
Íbúð getur fengist keypt með húsgögnum, heimilstækjum og borðbúnaði. Tilbúin til að flytja inn í. Algjörlega eign í sérflokki með frágang og gæði.
Frábær fyrsta eign fyrir vandláta.

SMELLTU HÉR TIL ÞESS AÐ SÆKJA SÖLUYFIRLIT
SMELLTU HÉR TIL AÐ SJÁ EIGNINA Í ÞRÍVÍDD


Lýsing eignar:
Forstofa: Parketlögð með sérsmíðuðu fatahengi.
Stofa / borðstofa: Parketlögð með gólfsíðum gluggum og útgengi á svalir til suðurs með gólfklæðningu.
Eldhús: Parketlagt og opið við stofu og með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum úr reyktri eik með quarts borðplötu bæði á borðum og eyju, quarts á milli skápa, spanhelluborði, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum ísskáp. 
Hjónaherbergi: Parketlagt og rúmgott og með opnum fataskápum á heilum vegg.
Baðherbergi:  Flotað gólf og flotaðir flísalagðir veggir, gólfhiti, speglaskápur, innrétting með marmara borðplötu og vask, handklæðaofn, og flotuð microsement sturta.
Þvottaherbergi: Flotað gólf og innréttingar með vinnuborði, vaski og góðu skápaplássi.  

Í kjallara hússins eru:
Sér bílastæði, í upphituðum bílakjallara..
Sérgeymsla, 11,5 fermetrar að stærð, máluð gólf og hillur.
Sameiginleg hjólageymsla.

Nánari upplýsingar veita: 
Allar nánari upplýsingar veitir:
Styrmir Bjartur, lfs í s.899 9090 eða styrmir@croisette.is
Karl Lúðvíksson, lfs í s: 663 6700 eða kalli@croisette.is



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.


 

Croisette Iceland ehf

Croisette Iceland ehf

Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. maí. 2024
81.950.000 kr.
86.000.000 kr.
120303 m²
715 kr.
4. apr. 2022
62.500.000 kr.
73.300.000 kr.
83.6 m²
876.794 kr.
29. okt. 2015
35.800.000 kr.
40.200.000 kr.
83.6 m²
480.861 kr.
30. apr. 2012
14.900.000 kr.
28.400.000 kr.
83.6 m²
339.713 kr.
19. okt. 2011
12.650.000 kr.
170.200.000 kr.
958.2 m²
177.625 kr.
22. nóv. 2007
1.785.000 kr.
33.710.000 kr.
83.6 m²
403.230 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Croisette Iceland ehf

Croisette Iceland ehf

Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík