Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Lilja Valþórsdóttir
Hákon Ólafur Hákonarson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1968
svg
206,2 m²
svg
6 herb.
svg
3 svefnh.
svg
Bílskúr

Lýsing

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt og mikið endurnýjað einbýlishús ásamt bílskúr að Hraunsvegi 2, 260 Reykjanesbæ.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í skóla og leikskóla.


Eignin er mun stærri en skráning FMR segir til um. Samkvæmt eiganda og teikningum er húsið 214,9fm og bílskúr 40fm. Samtals 254,9fm.

Á undanförnum árum er búið að endurnýja :
* Glugga að mestu
* Vatnslagnir
* Settur gólfhiti í eldhús, bæði baðherbergin, skrifstofurými, stofu og eldhús.
* Járn á þaki skúrs nýtt, er í góðu lagi á húsi
* Rafmagn endurnýjað að mestu, töflur endurnýjaðar
* Skolp endurnýjað
* Eldhús og baðherbergi endurnýjuð
* Gólfefni
* Eignin var nýverið einangruð að utan og klædd með hvítri álklæðningu frá Áltak.


Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Stofa með nýlegu parketi á gólfi og arinn í stofu.
Eldhús hefur nýlega stílhreina svarta og hvíta innréttingu, öll tæki nýleg. Flísar á gólfi.
Þvottahús góð innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Svefnherbergisgangur er með nýlegu parketi á gólfi.
Baðherbergi 1 með flísum á gólfi og veggjum, sturta og bað.
Baðherbergi 2 með flísum á gólfi og veggjum, sturta.
Svefnherbergin eru 3-4 og hafa þau öll nýlegt parket á gólfi. Möguegt er að fjölga þeim um eitt þar sem voru áður tvö herbergi en breytt var í eitt.

Bílskúr málað gólf.
Góður pallur er á baklóð með heitum potti og skjólveggjum.
Lóð er mjög snyrtileg og vel viðhaldin. Geymsluskúr á lóð.  Innkeyrsla er steypt og vélslípuð, í henni er snjóbræðsla.

Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða lilja@prodomo.is og Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 899-1298 eða hakon@prodomo.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

img
Lilja Valþórsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
PRODOMO fasteignasala
Hafnargötu 15, 230 Keflavík
PRODOMO fasteignasala

PRODOMO fasteignasala

Hafnargötu 15, 230 Keflavík
phone
img

Lilja Valþórsdóttir

Hafnargötu 15, 230 Keflavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. mar. 2019
48.850.000 kr.
55.500.000 kr.
206.2 m²
269.156 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
PRODOMO fasteignasala

PRODOMO fasteignasala

Hafnargötu 15, 230 Keflavík
phone

Lilja Valþórsdóttir

Hafnargötu 15, 230 Keflavík