Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2020
185,5 m²
3 herb.
2 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Opið hús: 30. júní 2025
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Valshlíð 16, 102 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 26. Eignin verður sýnd mánudaginn 30. júní 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Falleg og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð við Valshlíð á Hlíðarenda.Horníbúð með miklu útsýni í húsi sem er vel staðsett innan hverfisins. Húsið og reiturinn í heild er mjög vandað. Fallegur inngarður með aðgangsstýringu.
Birt stærð eignar er skráð 140,7 fm. hjá FMR, þar af er 30,9 fm. sérgeymsla innaf bílastæði.
Að auki er 44,8 fm bílskúr í bílageymsluhúsi, merktur C19, sem telur ekki í fermetrafjölda íbúðar.
Lofthæð í bílskúr og geymslu er um fimm metrar, sem gefur möguleika á millilofti.
Fasteignamat 2026: 110.150.000kr
Smelltu hér til að fá sent söluyfirlit
Nánari lýsing:
Parketlögð forstofa með vönduðum fataskáp frá JKE sem nær upp í loft.
Flísalagt gestabaðherbergi með "walk-in" sturtu. Upphengt salerni, handklæðaofn, frístandandi vaskur og blöndunartæki frá Tengi.
Stórt eldhús er opið við stofu með miklu skápaplássi. Quartz borðplata frá Granítsmiðjunni í eyju, sem búið er að koma fyrir auka rafmagnstenglum. Niðurfellt spanhelluborð og Elica gufugleypir. Miele bökunarofn í vinnuhæð, ásamt Temptech vínkæli. Innfeld uppþvottavél frá Miele og innfeldur ísskápur frá Bosch. Lýsing undir efri skápum.
Inn af eldhúsi er þvottahús með ræstivaski og góðri aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Björt falleg stofa með gólfsíðum gluggum og útgengi á svalir til norðurs og austurs. Viðarklætt svalargólf.
Tvö parketlögð svefnherbergi með góðum fataskápum frá JKE.
Við hjónaherbergi er rúmgott fataherbergi með verulega miklu skápaplássi.
Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf. "Walk-in" sturta, upphengt salerni, handklæðaofn, frístandandi vaskur og blöndunartæki frá Tengi.
Rúmgóð hjóla og vagnageymsla í sameign.
Aukin lofthæð, gólfsíðir gluggar, Miele tæki, Quarts á borðum. Ljósahönnun frá LUMEX.
Eignin er laus til afhendingar.
Húsið var byggt 2020 og klætt að utan með álklæðningu. Gluggar eru vandaðir danskir ál/tré gluggar frá Velfac sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði.
Aukin lofthæð er í húsinu 280 cm og gólfsíðir gluggar. Innréttingar eru frá danska fyrirtækinu JKE.
Blöndunartæki, handlaugar og salerni eru frá Tengi.
Sameiginlegur skjólgóður garður. Upphitaðar gönguleiðir og snjóbræðsla í inngarði.
Bílakjallarinn er á tveimur hæðum og í honum er fjöldi bílskúra auk hefðbundinna bílastæða.
Húsið er hannað af Alark Arkitektum.
Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. jún. 2021
33.800.000 kr.
89.900.000 kr.
140.7 m²
638.948 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025