Lýsing
Miklaborg kynnir: Stórglæsilegt arkitektateiknað heilsárshús á mjög fallegu og rólegu svæði í nánd við Reykholt i Bláskógabyggð. Arkitekt hússins er Hulda Jóns og er öll hönnun hússins einstaklega vönduð og hvergi til sparað í efnisvali. Húsið er skráð á byggingarstigi B2 en er mun nær því að teljast tilbúið til innréttinga. Gólfhitalagnir eru tengdar, rafmagn er tengt og gólfefni fylgir með. Klæðningar eru á veggjum. Hellulögð verönd er við húsið. Húsið er skráð 210,6 fm og geymsla 37,2 fm., samtals 247,8 fm. . Lóðin er tæplega 1 hektara eignarland. Nánari upplýsingar gefur Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og lögg. fast.: vidar@miklaborg.is, s.694-1401
Nánari lýsing: Húsið er skráð 210,6 fm auk geymsluhúss se, er skráð 37,2 fm. Þar er skv. teikningu gert ráð fyrir þvottaherbergi/baðherbergi auk geymslu. Eignin er samtals skráð 247,8 fm. Um er að ræða frístundahús á einni hæð úr krosslímdum timbureiningum. Húsið stendur á staðsteyptum grunni. þak er tvihalla þak úr viðurkenndum krosslímdum timbureiningum. Skv. teikningum er gert ráð fyrir þremur svefnherbergjum í húsinu, stofu og tveimur baðherbergjum auk eldhúss og gangs. Stofa er mjög rúmgóð og skiptist í setustofu og borðstofu. Stofurýmið er opið í eldhús þar sem gert er ráð fyrir eyju. Gert er ráð fyrir verönd við húsið og heitum potti.
Um er að ræða sérlega glæsilegt hús. Vandað er til verka við hönnun og byggingu hússins. Búið er að helluleggja lóðina.
Staðsetningin er í einstakri náttúruparadís og stendur húsið sér á tæplega 10.000 fm. ( 1 ha.) eignarlóð. Fjarstýrt hlið er inn á svæðið.
Stutt er í Reykholt og á Flúðir, þannig að veitingastaðir, sundlaug, golfvöllur og verslanir eru innan seilingar. Vinsamlegast hafið samband til að nálgast teikningar og byggingarlýsingu:
Nánari upplýsingar gefur Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og lögg. fast.: vidar@miklaborg.is, s.694-1401