Lýsing
Bjarkalundur – Einstakt tækifæri á einum fallegasta stað landsins
Bjarkalundur er einstök fasteign og jörð á einum fegursta stað landsins, umlukin náttúruperlum, fjölbreyttu fuglalífi og stórbrotnu landslagi. Á jörðinni er Berufjarðarvatn, um 15 hektarar að stærð, með góðri veiði og aðstöðu fyrir báta. Svæðið er skjólgott og veðursælt með mikla möguleika til frekari uppbyggingar í ferðaþjónustu.
Heildarstærð landareignar: 58,5 hektarar
Heildarstærð bygginga: 1.015 fm
Staðsetning: Við þjóðveginn, aðeins 200 km frá Reykjavík
Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is
English description below
Hótel Bjarkalundur og tilheyrandi fasteignir
Á landareigninni eru níu fasteignir sem samanlagt eru 1.015 fm að stærð. Þar á meðal eru:
- Hótel með 19 herbergjum, veitingasal, bar, verslun, sjoppu og fullbúnu eldhúsi.
- 6 smáhýsi, hvert um 20 fm, með gistiaðstöðu fyrir 2–3 gesti.
- Starfsmannahús með 7 herbergjum og sameiginlegri aðstöðu.
- Þjónustuhús fyrir tjaldstæði með salernum og sturtum.
- Aðstöðuhús og vélageymsla.
- Stórt tjaldstæði með rafmagni, heitu og köldu vatni og leiktækjum fyrir börn.
Á jörðinni eru fimm sumarbústaðalóðir með sér fastanúmerum, á svæði sem býður upp á mikla náttúrufegurð og friðsæld.
Afþreying og náttúra
- Berufjarðarvatn er vinsælt meðal veiðimanna og fuglaskoðara
- Gönguleiðir á svæðinu, m.a. upp á Vaðalfjöll með útsýni yfir sex sýslur
- Samstarf við Veiðikortið og gönguappið Wapp
- Möguleikar á kajaksiglingum, dagsferðum og náttúruskoðun
Rekstur og framtíðarmöguleikar
Hótel Bjarkalundur er eitt elsta sumarhótel landsins og vel þekkt meðal Íslendinga. Reksturinn hefur gengið vel og býður upp á fjölbreyttar tekjulindir: veitingasala, gisting, tjaldstæði og samstarf við N1. Miklir möguleikar eru til stækkunar og þróunar, bæði í gistingu og þjónustu.
Staðsetning og samgöngur
Hótelið stendur við þjóðveginn og nýtur góðs af nýloknum vegaframkvæmdum sem stytta leiðina vestur verulega. Þetta eykur umferð og aðgengi að svæðinu til muna. Þegar öllum vegaframkvæmdum má leiða líkum að því að umferð um svæðið aukist verulega.
Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@eignaland.is
***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***
Eignaland and Jens Magnús Jakobsson, certified real estate agent, present for sale: Bjarkalundur, 381 Reykhólahreppur.
Bjarkalundur – A Unique Opportunity in One of Iceland’s Most Beautiful Locations
Bjarkalundur is a remarkable property and estate located in one of Iceland’s most scenic areas, surrounded by natural wonders, diverse birdlife, and dramatic landscapes. The estate includes Berufjarðarvatn, a 15-hectare lake with excellent fishing and facilities for boating. The area is sheltered and enjoys favorable weather conditions, offering great potential for further development in tourism.
Total land area: 58.5 hectares
Total building area: 1,015 m²
Location: Along the main road, just 200 km from Reykjavík
For more information, contact Jens Magnús at +354 893-1984 or magnus@eignaland.is
Hotel Bjarkalundur and Associated Properties
The estate includes nine buildings totaling 1,015 m², including:
- A hotel with 19 rooms, a dining hall, bar, shop, snack bar, and fully equipped kitchen
- Six cabins, each approx. 20 m², accommodating 2–3 guests
- Staff housing with 7 rooms and shared facilities
- Service building for the campsite with toilets and showers
- Utility building and machinery storage
- Large campsite with electricity, hot and cold water, and playground equipment
Summer Cottage Lots
There are five summer cottage lots on the property, each with its own property number, located in a peaceful and scenic area.
Recreation and Nature
- Berufjarðarvatn is popular among anglers and birdwatchers
- Hiking trails in the area, including routes to Vaðalfjöll with views over six counties
- Partnerships with the Veiðikortið fishing card and the Wapp hiking app
- Opportunities for kayaking, day tours, and nature exploration
Operations and Future Potential
Hotel Bjarkalundur is one of Iceland’s oldest summer hotels and is well known among locals. The business has been successful, offering diverse revenue streams: restaurant services, accommodation, camping, and cooperation with N1. There is significant potential for expansion and development in both lodging and services.
Location and Accessibility
The hotel is located directly on the main road and benefits from recently completed road improvements that significantly shorten travel time to the Westfjords. These upgrades increase traffic and accessibility to the area. Once all road projects are completed, traffic through the region is expected to grow substantially.
For further information or to book a viewing, contact:
Jens Magnús Jakobsson
Phone: +354 893-1984
Email: magnus@eignaland.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.