Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2022
119,4 m²
4 herb.
2 baðherb.
3 svefnh.
Útsýni
Sérinngangur
Opið hús: 30. júní 2025
kl. 16:15
til 17:00
Lýsing
Hvammur Fasteignasala 466 1600
Reynihlíð 19b - Glæsileg 4ra herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð í Hörgársveit - stærð 119,4 m² auk geymsluskúrs.
** Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega **
- Eignin er timburhús, klætt með dökku bárustáli og með skráð byggingarár 2022.
- Fallegar innréttingar með dekton stein á bekkjum.
- Innfelld led lýsing í öllum loftum fyrir utan geymslu.
- Steypt afgirt verönd og um 15 m² einangraður geymsluskúr á baklóðinni.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, gang, hjónaherbergi með baðherbergi inn af, tvö barnaherbergi, baðherbergi og geymslu.
Forstofa er með gráum flísum á gólfi og þiljum á hluta veggja. Innfelld lýsing er í lofti.
Eldhús, vönduð innrétting og eyja með skúffum beggja vegna og með dekton steini á bekkjum. Tækjaskápur er við hliðina á eldhúsborðinu. Ísskápur með frysti og uppþvottavél eru innfelld í innréttingu og fylgja með við sölu eignar.
Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem harð parket er á gólfi og loft eru tekin upp og með innfelldri lýsingu. Sjónvarpsskenkur fylgir með við sölu eignar. Í stofu eru gólfsíðir gluggar og hurð út á steypta verönd.
Hjónaherbergið er skráð 14,1 m² að stærð, með harð parketi á gólfi, stórum hvítum fataskápum og innfelldri lýsingu í lofti. Baðherbergi er inn af hjónaherberginu flísalagt í hólf og gólf, hvít innrétting með dekton bekkplötu, upphengdu wc, walk-in sturtu og handklæðaofni.
Barnaherbergin eru tvö, bæði með harð parketi á gólfi, hvítum fataskápum og innfelldri lýsingu í lofti. Stærð herbergja er skv. teikningum. 11,0 m²
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, hvít innrétting með dekton bekkplötu, upphengt wc, walk-in sturta með innfelldum tækjum og handklæðaofn. Hvít innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð er inn á baðherberginu.
Geymsla er við hliðina á forstofunni með flísum á gólfi, hvítum fataskápum og opnanlegum glugga.
Annað
- Geymsluloft er yfir hjónaherberginu og er fellistigi upp á það
- Steypt afgirt verönd er á baklóðinni með hitalögnum í hluta. Lagnir eru fyrir heitan pott.
- Um 15 m² einangraður geymsluskúr er á baklóðinni inn á veröndinni. Þar er steypt og lakkað gólf og grá innrétting. Tvöföld hurð og opnanlegur gluggi.
- Fyrir framan húsið er steypt bílastæði með hitalögnum í.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. des. 2023
62.550.000 kr.
78.500.000 kr.
119.4 m²
657.454 kr.
28. júl. 2021
5.530.000 kr.
54.500.000 kr.
119.4 m²
456.449 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025