Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björn Þorri Viktorsson
Vista
svg

1353

svg

1046  Skoðendur

svg

Skráð  26. jún. 2025

einbýlishús

Lækjarbraut 4 Kjós

276 Mosfellsbær

187.900.000 kr.

541.187 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2274374

Fasteignamat

132.950.000 kr.

Brunabótamat

159.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2004
svg
347,2 m²
svg
7 herb.
svg
3 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
Opið hús: 1. júlí 2025 kl. 17:00 til 18:00

Einstök eign í næsta nágrenni við höfuðborgarsvæðið. Verið velkomin.

Lýsing

Fasteignasalan Miðborg kynnir eignina Lækjarbraut 4, 276 Kjós, en um er að ræða fallegt einbýli á tveimur hæðum ásamt bílskúr og aukaíbúð, samtals 292 fm., auk aukabyggingar skráð hesthús, 55,2 fm., alls 347,2 fm., á fallegri rúmlega 2,1 ha. eignarlóð austast úr landi Eyrar. Eignin stendur í 4ra húsa skipulögðu svæði, þar sem allar eignir standa á stórum lóðum.  Fallegt útsýni m.a. til Snæfellsjökuls og fjallahringurinn, Akrafjall, Skarðsheiði og áfram austur um.  Húsið skiptist í stóra forstofu/tengibyggingu, innri forstofu, hol, stofur, eldhús, tvö baðherbergi, fjögur svefnherbergi, þvottahús og búr.  Bílskúrinn er 55 fm. og yfir honum er stúdíoíbúð með sérinngangi, forstofu og baðherbergi á neðri hæð, en uppi er opið rými undir súð, með eldhúsi í öðrum endanum.  Mikið gróin og falleg lóð með stórum flötum, veröndum með heitum potti og fjölda trátegunda.

Nánari lýsing íbúðarhúss.  Komið er á stóra (25-30 fm.) físalagða forstofu/tengibyggingu með fataskáp og tveimur útihurðum.  Af henni er bæði gengt í innri forstofu og þvottahús, en einnig á baklóð.  Flísalögð innri forstofa.  Holið er flísalagt, opið við stofu, eldhús og borðstofu.  Eldhúsið er stórt, flísalagt með stórri hvítsprautaðri viðarinnréttingu með límtré á vinnuborðum og gleri í hluta efri skápa.  Stór borðkrókur, flísar á milli skápa og lögn fyrir uppþvottavél.  Borðstofan er samliggjandi með útgangi á fallega verönd sem umlykur alla eignina, að undanskildri aðkomuhlið bilskúrsins.  Stofan er samliggjandi, flísalögð og björt.  Baðherbergið er flísalagt, með sturtuklefa, innréttingu og glugga.  Rúmgott herbergi (opið) er á neðri hæð (hjónaherb. skv. teikningu) með 6x fataskápum.  Þvottahús og búr er flísalagt og með innréttingum.  Gólfhiti á neðri hæð.  Fallegur stigi á efri hæð sem er að hluta undir súð.  Þar er komið á rúmgott parketlagt hol.  Þrjú stór parketlögð herbergi og flisalagt baðherbergi með innréttingu, hornbaðkari og glugga. Fataherbergi er inn af stærsta herberginu.   Falleg verönd umlykur eignina, heitur pottur, pergólur o.fl. o.fl.

Bílskúrinn er stór og með rúmlega 4ra metra breiðri innkeyrsluhurð, gönguhurð, innréttingu og gluggum á tvær hliðar.  Epoxy á gólfi.

Sérinngangur í stúdioíbúð sem er yfir öllum skúrnum.  Forstofa með fataskáp og baðherbergi á neðri hæð.  Stigi upp og þar er parketlagður salur/studio undir súð, með eldhúsinnréttingu og tækjum í öðrum endanum og gluggum á báðum hliðum.

Hesthúsið hefur aldrei verið innréttað sem slíkt, en er með steyptu gólfi, innkeyrsluhurð, gluggum á hliðum og hurðargati í enda.  Þar er upphitun með affalli og 3ja fasa rafmagn.  Heimilt er að byggja við hesthúsið og stækka það um 130 fm.

Einstök eign á eignarlandi með endalausa möguleika, á fallegum stað í næsta nágrenni við höfuðborgarsvæðið (25 mín akstur).

Nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lögg. fasteignasali, í síma 894-7070, tölvupóstur bjorn@midborg.is.

img
Björn Þorri Viktorsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Miðborg fasteignasala
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Miðborg fasteignasala

Miðborg fasteignasala

Skipholt 50b, 105 Reykjavík
phone
img

Björn Þorri Viktorsson

Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Miðborg fasteignasala

Miðborg fasteignasala

Skipholt 50b, 105 Reykjavík
phone

Björn Þorri Viktorsson

Skipholt 50b, 105 Reykjavík