
Lýsing
Hverfisgata 83 er virðulegt fjölbýlishús kallað Bjarnaborgin þar sem lokaður inngarður og vernduð ásýnd hússins og vönduð vinnubrögð við uppgerð hússins og íbúðanna sýna virðingu við sögu þess og Reykjavíkurborgar.
Um er að ræða íbúð merkt 0104 við Hverfisgötu 83, 2ja herbergja íbúð með sérinngangi frá svölum í einstöku húsi í hjarta Reykjavíkur.
Eignin er skráð 62,4 skv. Fasteignaskrá HMS, þar af er íbúðin sjálf 57 fm. og sérgeymsla mekrt 01-0005 5,4 fm., svalir eru 15,2 fm. að stærð.
Í húsinu eru 15 tveggja herbergja íbúðir, allar með sérgeymslu, sameiginlegri vagna- hjólageymslu, sameiginlegu þvottahúsi og fallegum inngarði með bekkjum og gróðri. Stigahús í garðinum er með lyftu og því gott aðgengi að íbúðunum.
Íbúðirnar eru nýlega uppgerðar með pússuðu, gegnheilu Merbau-harðviðarparketi á gólfum, nýjum eða nýlegum innréttingum í eldhúsi ásamt eldhústækjum og ísskáp og flestar með uppþvottavél, gluggi í eldhúsi snýr inn í garðinn og er opnanlegur.
Stofa er björt með gluggum í vestur, gengið er út á svalir ýmist frá stofu eða svefnherbergi, frá svölum sést til norðurs út á sjóinn.
Svefnherbergi er rúmgott með góðum fataskápum.
Baðherbergi er dúklagt með baðkari, salerni og handlaug, mögulegt er að tengja þar þvottavél. Gluggi með opnalegu fagi er á baðherbergi.
Forstofa - flestar með fataskáp eða aðstöðu til að setja upp fatahengi.
Geymslur í sameiginlegu rými í kjallar merkt 01-005 er 5,47 fm. Í sameign á jarðhæð er rúmgott, sameiginlegt þvottahús.
Íbúar/eigendur geta sótt um íbúakort fyrir gjaldfrítt bílastæði skv. reglum Reykjavíkurborgar en einnig er bílastæðahúsið við Vitaorg stærsta bílastæðahús á höfuðborgarsvæðinu og almennt styst bið eftir langtíma leigu bílastæðis þar.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar með eldhústækjum, húsið verður full málað að utan sumarið 2025.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.