Upplýsingar
Byggt 1930
257,1 m²
5 herb.
4 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Útsýni
Aukaíbúð
Laus strax
Lýsing
Fasteignasalan Byggð 464-9955
Munkaþverárstræti 7
Fallegt og virðulegt fimm herbergja einbýlishús á þremur hæðum sem hefur verið vel við haldið auk bílskúrs og leiguíbúðar í bakhúsi. Eignin er samtals 257,1 fm. þar af er bílskúr skráður 43 fm. og íbúðin við hlið bílskúrs skráð 47,8 fm.. Mjög vinsæl staðsetning á neðri brekku í næsta nágrenni við miðbæ Akureyrar.
Hér er um að ræða frábæran möguleika á að nýta húsið sem einbýlishús auk þess sem hægt er að hafa góðar leigutekjur af bakhúsinu.
**Eignin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning**
**Til greina koma skipti á minni og ódýrari eign**
1. hæð
Forstofa er rúmgóð með flísar á gólfi og á stiga upp á 2. hæð. Hiti er í gólfi.
Svefnherbergið á hæðinni eitt af fjórum í húsinu, er með flísar á gólfi og þar er einnig hiti í gólfi. Inn af herberginu sem er afar rúmgott er baðherbergi með sturtuklefa og innréttingu í kringum vask.
Þvottahús er inn af forstofu, þar eru flísar á gólfi, góð innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara auk vask. Þar er einnig geymsla undir steyptum stiga sem leiðir hálfa hæð upp að bakdyrainngangi.
Heit og köld geymsla er inn af þvottahúsi, mikið geymslurými er þar en úr köldu geymslunni sem er hellulögð er gengið út á verönd.
2. hæð
Eldhús er með dúk á gólfi, virkilega vel skipulögð innrétting með miklu skápa- og bekkjarplássi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél sem fylgir, bakaraofn og helluborð. Þar er einnig eldhúskrókur. Uppþvottavél og bakaraofn er nýlegt.
Stofa er björt, með parket á gólfi. Úr stofu er gengið út á veglega og mjög sólríka flísalagða verönd sem snýr til suðvesturs.
Snyrting er á hæðinni með dúk á gólfi, salerni vask við litla innréttingu og glugga með opnanlegu fagi.
3. hæð
Baðherbergið er með dúk á gólfi og þar er sturtuklefi, góð innrétting í kringum vask, salerni og gluggi með opnanlegu fagi.
Svefnherbergi eru þrjú á hæðinni, öll með dúk á gólfi og fataskápum. Úr hjónaherbergi er gengið út á flísalagðar svalir sem snúa til suðurs og eru undir þaki.
Bílskúr er virkilega rúmgóður með mikilli lofthæð og geymslulofti að hluta. Flísar á gólfi, góð lýsing og rafmagnsdrifin innkeyrsluhurð auk inngönguhurðar á suðurhlið.
Leiguíbúð er staðsett við hlið bílskúrs og er í bakhúsi, eldvarnarhurð sem hægt er að læsa er milli íbúðar og bílskúrs.
Þar er sér inngangur, góð forstofa með flísum á gólfi, aðstöðu fyrir þvottavél sem getur fylgt og góðum fataskáp.
Eldhús og stofa er í opnu rými með með flísum á gólfi, góðri eldhúsinnréttingu með stæði fyrir lítinn ísskáp, frístandandi uppþvottavél, örbylgjuofn og eldavél en allt í innréttingu sem og aðrir húsmunir geta fylgt. Lítil geymsla er undir stiga.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, þar er sturtuklefi sem hægt er að nýta sem setlaug, salerni, skápur í innréttingu undir vask og speglaskápur.
Svefnloft er yfir íbúðinni og undir súð að hluta. Þar er parket á gólfi, fataskápur undir súð og gluggi með opnanlegu fagi auk þes að vera neyðarútgangur, hægt að opna alveg.
Annað:
-Eignin var að mjög miklu leiti endurnýjuð árið 1995, raflögn, inntök fyrir heitt og kalt vatn ásamt hitaveitugrind. Inn- og útveggir á 2. og 3. hæð endurbyggðir og einangrað, innréttingar og margt fleira endurnýjað. Timburgólf á milli hæða styrkt eftir þörfum. Mikið magn mynda og annara heimilda til frá breytingum.
-Þak endurnýjað 1995.
-Steypt bílaplan er meðfram húsinu að norðan og liggur upp að bílskúr þá eru steyptar stéttar bæði fyrir framan hús og vestan við hús sem nær að bakhúsi. Í stéttum er hiti, affall af húsinu en ekki í bílaplani.
-Gluggar nýlega málaðir að utan.
-Skipt um gler í gluggum eftir þörfum.
-Bakhús byggt frá 1999 en tekið í notkun ca. 2003.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955