Lýsing
Eignaland fasteignasala kynnir: Skrifstofuhúsnæði í miðbæ Selfoss.
Um er að ræða vel hannað og skemmtilegt skrifstofurými skráð 90.2fm að stærð, að Austurvegi 6, á 3ju og efstu hæð í lyftuhúsi.
Húsið er byggt árið 2000. Steinsteypt og steinað.
Eignin skiptist þannig að í rýminu eru 3 rúmgóðar skrifstofur og einnig er alrými sem gæti nýst sem móttaka eða sameigin legt rými.
Gegnheilt parket er á gólfum. Í sameign á hæðinni er kaffistofa og wc.
Lyfta er í húsinu. Sameign hússins er snyrtileg og flísalögð.
Geymsla fylgir eigninni, sem er staðsett í kjallara eignar.
Þetta er gott tækifæri fyrir fyrirtæki eða fjárfesta sem vilja eignast gott skrifstofhúsnæði á besta stað á Selfossi.
Allar nánari upplýsingar veita Sigurður Fannar lögg.fasteignasali í síma 897-5930 eða siggifannar@eignaland.is
og Jens Magnús í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.