Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
einbýlishús

Kotra 11

605 Akureyri

119.900.000 kr.

719.256 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2512582

Fasteignamat

66.400.000 kr.

Brunabótamat

58.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2022
svg
166,7 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur - 466 1600
Kotra 11
Nýtt fallegt 3ja herbergja einbýli á einni hæð með bílskúr á útsýnislóð við Kotru í Eyjafjarðarsveit - samtals 166 m²


Húsið skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu alrými, tvö svefnherbergi og baðherbergi auk bílskúrs með þvottahúsi/geymslu.

Forstofan er á norðurhlið hússins við bílaplan.  Flísar eru á gólfi.  
Stofan og eldhúsið eru í einu opnu og björtu rými með aukinni lofthæð og stórum gluggum til austurs og suðurs.  Eldhúsinnrétting er dökk viðarinnrétting.  
Útgangur er úr stofu til suðurs út á verönd með heitum potti.
Svefnherbergin eru tvö og eru bæði rúmgóð.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og á vegg í kringum walk-in sturtu með gleri.  Útgangur er á baðherginu til vesturs.  Tengi fyrir þvottavél er á baðherberginu og dökkur skápur undir vask.  Handklæðaofn og opnalegur gluggi.
Bílskúrinn er stakstæður, eitt opið rými auk lokað rými með sér inngangi inní sem gert er ráð fyrir að verði nýtt sem þvottahús eða geymsla.  Rafknúinn hurðaropnari er á skúrnum.

Annað
- Lóðin er eignarlóð, 2.074 m² að stærð.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Gólfhiti er í allri eigninni, hitaveita.
- Samþykktar teikingar eru til af stækkun til suðurs um 20 m², gluggastykki kominn á staðinn og búið að hafa jarðvegsskipti.
- Gólf eru flotuð og lökkuð að undanskildu baðherbergi og þvottahúsi, en þar eru flísar.
- Loft eru tekin upp í öllu húsinu og innfelld lýsing.
- Rúmgott bílaplan er norðan við húsið með perlumöl.
- Einstakt útsýni.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.



 

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. maí. 2023
53.550.000 kr.
85.000.000 kr.
111.2 m²
764.388 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone